Menning
Birtíngur, Hunang og Sköpun bernskunnar
24.02.2026 kl. 09:30
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Leiksýningar
- Birtíngur frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, fimmtudaginn 26. feb kl. 20.00. 2. sýning föstudaginn 27. feb og 3. sýning 28. feb kl. 20.00.
- Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Sýningar föstudag og laugardag, 27. og 28. feb kl. 20.00.
Tónleikar
- Classic Rock ásamt Magna og Matta á Græna – Föstudag, 27. feb kl. 21:00.
- Hunang ásamt Kalla Örvars og Diskódívunum – Græni hatturinn, laugardaginn 28. feb kl. 21:00.
- Ég skal syngja fyrir þig – Einar Ágúst syngur ljóð Jónasar Friðriks við undirleik Gosanna frá Vestmannaeyjum.
- Skúli mennski á Leyni – Laugardaginn 28. feb kl. 21:00.
- Kór Hallgrímskirkju í Akureyrarkirkju – Laugardag 28. febrúar kl. 17:00. Fjölbreytt kirkjutónlist. Tónleikarnir eru þeir fyrstu sem Kór Hallgrímskirkju heldur utan höfuðborgarsvæðisins.
Viðburðir
- Pub Quiz með Villa vandræðaskáldi á LYST – Föstudagskvöldið 27. feb kl. 20:30.
- Þriðjudagsfyrirlestur á Listasafninu - Nicola van Kuilenburg / Bakslag. Þriðjudaginn 24. feb kl. 16.15.
- Sköpun & slökun á Amtinu – Tálgað í kubba með Óla Sveins. Fimmtudagskvöld 26. feb kl. 19.30.
- Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
- Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 24. febrúar er næsti hittingur.
- Danskvöld og ókeypis prufutími í salsa - Salsa north á Vamos. Fimmtudagskvöldið 26 .feb kl. 20.
- Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.

Fjölbreytt tónleikaúrval er í vikunni. Klassískt rokk með Magna og Matta / Hunang og Kalli Örvars á Græna, Einar Ágúst í Hofi og Skúli Mennski á Leyni.
Listasýningar
- Opnun: Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
- Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
- Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
- Vítahringur / Vicious circle - Listasýning Ólafs Sveinssonar og Boaz Yosef Friedman í Mjólkurbúðinni. Opið laugardag 28. feb og sunnudag 1. mars á milli 14-17.
- Litasinfóníur - myndlistasýning Rósu Njálsdóttur á Bókasafni HA. Þar eftir er opið á opnunartíma bókasafnsins.
- Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.