Birtíngur – Fyndin saga en líka skelfileg
Leikfélag Akureyrar frumsýnir stóra verkefni ársins, Birtíng, á morgun, fimmtudag. Bergur Þór Ingólfsson, leikhússtjóri, leikstýrir verkinu sjálfur og segir að sagan hafi alltaf vakið forvitni hans. „Hún er bæði hræðileg og fyndin og svo tengist hún nútímanum á þann hátt að það eru sömu hlutir í gangi þarna 1759 og 2026 í heiminum. Við lesum í dag svipaðar fréttir og hefðu verið skrifaðar á þeim tíma, þegar Voltaire skrifar söguna.“
Þó að Birtíngur sé gömul og klassísk saga, þá erum við að segja hana á nútímalegu máli við nútíma fólk á skemmtilegan, fjörugan og kröftugan hátt
„Höfundurinn er í raun að gagnrýna með ýkjum og satíru það ástand sem er í gangi. Upplýsingin er að vaxa á þessum tíma og Voltaire er hluti af þeirri hreyfingu sem vill komast undan bábylju og óreiðu í samfélaginu. Hindurvitni og ofsatrú hafa komið í veg fyrir skynsamlega greiningu á muninum á réttu og röngu. Þetta er í raun risa ádeila á misbeitingu valds. Þó að Birtíngur sé gömul og klassísk saga, þá erum við að segja hana á nútímalegu máli við nútíma fólk á skemmtilegan, fjörugan og kröftugan hátt.“

Bergur Þór Ingólfsson. Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Sagan endurtekur sig alltaf
Túlkun LA á Birtíngi er svolítið tímalaus að því leytinu til, að saman stefnir hlutum frá mismunandi tímabilum. Persónur eru í nútímalegum jakkafötum með átjándu aldar hárkollur, sem dæmi. Þannig leikur Bergur sér með þá hugmynd að þessi saga gæti eins átt sér stað í nútímanum, þar sem viðfangsefni verksins bergmálar endurtekið stef í gegnum sögubækurnar. „Við erum að tala um okkur sem mannfólk, frá því að sagan var skrifuð og fram á daginn í dag,“ segir Bergur Þór.
Kannski er hægt að kalla þetta klassíska hetjusögu, nema Birtíngur er ekkert sérstaklega mikil hetja!
Bergur Þór gerði sjálfur nýja leikgerð af verkinu, auk þess sem Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson hefur samið glænýja tónlist. Það er því óhætt að segja að hér sé á ferðinni nýtt íslenskt leikverk, en það eru 30 ár síðan Hafnarfjarðarleikhúsið sýndi sína útgáfu af Birtíngi.
„Ég þýddi söguna úr ensku og var með ýmsar aðrar þýðingar til hliðsjónar. Ég ætlaði fyrst að nota frábæra þýðingu Halldórs Laxness, en ég hefði farið svo illa með hana að ég ákvað bara að gera þetta sjálfur, í staðinn fyrir að tæta textann hans í mig. Ég fékk samt leyfi hjá erfingjum hans til þess að nota nöfnin úr hans þýðingu, sem hafa fest sig í sessi og eru hluti af okkar upplifun af sögunni,“ segir Bergur Þór. Á frummálinu heitir Birtíngur Candide.

Sólveig Guðmundsdóttir og Níels Thibaud Girerd eru í fimm manna leikarahópi sýningarinnar. Níels er að leika hjá Leikfélagi Akureyrar í fyrsta sinn, en Sólveig lék Hjartadrottninguna í Lísu í Undralandi árið 2015. Mynd: Auðunn Níelsson

Búningar sýningarinnar eru mikið listaverk, en Björg Marta Gunnarsdóttir á heiðurinn af þeim. Myndir: Auðunn Níelsson
Útskúfaður í besta stað allra staða
„Þegar ég les söguna, þá finnst mér hún bæði fyndin og skelfileg. Það er ótrúlega margt að gerast í þessu ferðalagi sem Birtíngur neyðist til þess að taka sér fyrir hendur, og flest getur flokkast undir hörmungar. Honum er hent út úr besta stað allra staða og lendir í stríði, jarðskjálftum, ofbeldi og þjófnaði svo fátt eitt sé nefnt.“
Sagan er ýkt og persónurnar eru stórar
Í upphafi sögunnar er Birtíngur staddur í kastala og lifir góðu lífi. Heimspekikennarinn hans, Altunga, er mikill bjartsýnisboðberi og segir að allt leiði alltaf til hins betra í þessum heimi sem við búum í, því hann sé besti heimur allra heima. Þessi orð tekur Birtíngur með sér og heldur alltaf í vonina um að einhverntíman verði allt gott, sama hvað á dynur.
„Birtíngur leitast við að finna það góða í hörmungunum og illskunni, en í kjarnanum er þetta líka ástarsaga,“ minnir Bergur á. „Honum er í raun hent út úr kastalanum fyrir einn koss og sagan hverfist svo um að hann er að leita að henni Kúnígúnd sinni. Hann er að leita að ástinni og kannski er hægt að kalla þetta klassíska hetjusögu, nema Birtíngur er ekkert sérstaklega mikil hetja!“

Tónlist og tímaleysi. Hólmfríður Hafliðadóttir og Urður Bergsdóttir. Mynd: Auðunn Níelsson

Verkið er samvinnuverkefni LA og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Hljóðfæraleikararnir eru aftast á sviðinu og flytja tónlistina, sem er frumsamin fyrir verkið af Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni. Mynd: Auðunn Níelsson
Tónlistin flutt á sviðinu
Tónlist Þorvaldar Bjarna er blanda af klassískri tónlist, rokki og ballöðum og 10 hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands verða á sviðinu og flytja tónlistina. Fimm leikarar leika öll hlutverk sýningarinnar, en það eru þau Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Níels Thibaud Girerd, Sólveig Guðmundsdóttir og Urður Bergsdóttir.
Nokkrar ansi líflegar stiklur hafa verið gefnar út og áhugasöm geta fylgt Leikfélagi Akureyrar á samfélagsmiðlum til þess að sjá. Aðspurður segir Bergur að þetta sé ekki fyrir börn, og miðar við 12 ára aldur þó það sé alltaf foreldranna að meta. „Sagan er ýkt og persónurnar eru stórar. Ég myndi segja að fólk eigi von á frásagnagleði og frábærri frammistöðu leikara og tónlistarfólks. Ég býst við, og ætla mér að þetta verði skemmtilegt og fyndið. Kómík í bland við rækilega skoðun á því, hve heimurinn getur verið grimmur.“
- Miðasala á Birtíng er á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar.