Menning
Bikarinn: Þór-ÍBV og Fram-KA/Þór
20.11.2026 kl. 20:00
Þórsarinn Brynjar Hólm Grétarsson í leik gegn Stjörnunni fyrr í vetur og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, leikmaður KA/Þór, í deildarleik gegn Fram á dögunum. Myndir: Ármann Hinrik
Þórsarar taka á móti Vestmannaeyingum í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í handbolta, Powerade bikarsins, og KA/Þór mætir Fram á útivelli í bikarkeppni kvenna. Dregið var í dag.
Leikirnir fjórir í bikarkeppni karla fara allir fram föstudagskvöldið 18. desember samkvæmt heimasíðu HSÍ en kvennaliðin spreyta sig hins vegar ekki fyrr en þriðjudaginn 2. febrúar.
Bikarkeppni karla:
- Afturelding - Haukar
- Grótta - Valur
- Víkingur - FH
- Þór - ÍBV
Bikarkeppni kvenna:
- Valur - Haukar
- Fram - KA/Þór
- ÍR - Selfoss
- Stjarnan - HK
Sigurvegarar leikjanna tryggja sér sæti í bikarúrslitahelginni, þar sem Hin fjögur fræknu berjast um bikarmeistaratitilinn.
- Undanúrslit bikarkeppni kvenna verða miðvikudaginn 31. mars og úrslit ráðast föstudagskvöldið 2. apríl.
- Undanúrslit bikarkeppni karla verða föstudagskvöldið 2. apríl og úrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 3. apríl.