Fara í efni
Menning

Biggi Maus opnar nýja heimasíðu

Birgir Örn Steinarsson, eða Biggi Maus eins og hann er jafnan kallaður, hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni biggimaus.is. Á vefnum er að finna yfirlit yfir fjölbreyttan tónlistarferil Birgis, allt frá árunum með hljómsveitinni Maus til sólóverkefna og annarra samstarfsverkefna, svo sem Krónu og The Bigital Orchestra.

Í fréttatilkynningu kemur fram að sérstaklega mikið efni sé í myndbandasafni síðunnar, sem nær yfir meira en þrjá áratugi. Þar má meðal annars finna tónlistarmyndbönd, upptökur af tónleikum og sjaldséð efni úr sögu tónlistarmannsins.

Ætlar að skrifa um lífið og listina

Vefurinn verður jafnframt vettvangur fyrir skrif Birgis um lífið, listina, samfélagið og önnur hugðarefni. Fyrsti pistillinn Hvað ég hef lært í skóla lífsins? er þegar kominn inn á síðuna. Pistillinn birtist upphaflega í prentuðu blaði Heimildarinnar í ágúst síðastliðnum undir fyrirsögninni Veröldin hrundi og það var það besta sem hefur komið fyrir mig.

Gestir síðunnar geta einnig sent Birgi spurningar sem hann hyggst svara á vefnum.

Í tilkynningunni segir að með nýju síðunni hafi Birgir skapað sér sjálfstæðan vettvang til að safna saman tónlist, myndböndum og öðru efni úr ferlinum, auk þess að miðla skrifum sínum og kynna verkefni sem fram undan eru.

Birgir hefur verið búsettur á Akureyri undanfarin ár og starfar sem sálfræðingur hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands.