Biggi Maus og MeMMM spila á Skollamjólk
Næstu tónleikar tónleikaraðarinnar Skollamjólkur verða á morgun, laugardaginn 17. október, þegar Biggi Maus og MeMMM koma fram. Tónleikar Skollamjólkur fara fram mánaðarlega í Slímstöðinni, höfuðstöðvum listasamlagsins MBS, og er markmiðið bæði að auka framboð tónleika í bænum og fanga tónlistarflutninginn á hljóð og mynd til birtingar á netinu. Slímstöðin er til húsa að Strandgötu 53.
Fyrstu tónleikar raðarinnar fóru fram í byrjun september þegar akureyrska hljómsveitin Strákurinn Fákurinn steig á svið. Upptökur frá tónleikunum hafa verið birtar á YouTube-rás MBS, þar sem hægt er að sjá og heyra sveitina flytja meðal annars lögin Ostar, klám og ofbeldi, Sofa og Flottur bíll, flottur strákur. Strákurinn Fákurinn gaf nýlega út sína fyrstu plötu, Drengurinn Fengurinn, og hefur vakið athygli fyrir kraftmikla sviðsframkomu.

Hljómsveitin Strákurinn fákurinn kom fram á fyrstu tónleikum Skollamjólkur í september.
Skollamjólk er nýjasta verkefni MBS, sem rekur einnig sjálfstæða plötuútgáfu á Akureyri og hefur staðið fyrir menningarhátíðinni Mannfólkið breytist í slím frá árinu 2018.
Fjölbreytt tónlist framundan
Í nóvember er svo von á svartmálmssveitinni Mannveiru. Samkvæmt því sem kemur fram í fréttatilkynningu frá MBS gætu það orðið fyrstu svartmálmstónleikar á Akureyri í um áratug. Í desember er það Áki Frostason og Drinni and the Dangerous Thoughts í janúar.

Sérstaða tónleikaraðarinnar felst ekki aðeins í fjölbreyttu tónlistarframboði heldur einnig áherslunni á að taka tónleikana upp með faglegum hætti og gera þá aðgengilega á netinu. Þannig geta tónlistarunnendur einnig notið flutningsins eftir að tónleikunum sjálfum lýkur.
Tónleikar Skollamjólkur eru haldnir mánaðarlega og er aðgangur ókeypis, en gestum gefst kostur á að leggja fram frjáls framlög.
Nánari upplýsingar má finna á vefnum mbsskifur.is og samfélagsmiðlum MBS.