Fara í efni
Menning

„Besta listaverk 21. aldar“ í Listasafninu

Ragnar Kjartansson, The Visitors, 2012.

Sýning á verki Ragnars Kjartanssonar, Gestirnir / The Visitors, verður opnuð í Listasafninu á Akureyri á laugardaginn. Verkið var fyrst sett upp árið 2012 og fyrir nokkrum misserum valdi breska blaðið The Guardian The Visitors besta listaverk 21. aldarinnar fram að því! Birti þá lista yfir þau 25 bestu, að mati blaðsins, eftir ýmsa heimskunna listamenn.

Samtímis verður opnuð safnsýningin Ný og splunkuný, en þar má sjá nýleg verk úr safneign Listasafnsins.

Gestirnir

„The Visitors – óður vináttu við tónfall rómantískrar örvæntingar. Hópur vina og tónlistarmanna safnast saman í kjörlendi bóhemíunnar, í ljósaskiptunum, á hinum stórbrotna og hnignandi Rokeby Farm í Upstate New York,“ segir í tilkynningu frá Listasafninu á Akureyri um sýningu Ragnars Kjartanssonar. „Staðurinn verður vettvangur þess sem Ragnar kallar femínískt, níhilískt gospel lag: marglaga portrett af vinum listamannsins, könnun á möguleikum tónlistar í kvikmyndaforminu og dregur titil sinn af síðustu plötu ABBA, The Visitors, sem mörkuð var aðskilnaði og ósigri. Tónlistarmennirnir í verkinu eru Davíð Þór Jónsson, Gyða Valtýsdóttir, Kristín Anna Valtýsdóttir, Ólafur Jónsson, Þorvaldur Gröndal, Shahzad Ismaili, Ragnar Kjartansson og Kjartan Sveinsson. Lagið er eftir Ragnar og Davíð Þór Jónsson og er samið við textabrot úr myndbandsverkum og gjörningum Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur.“

Ragnar Kjartansson.

Verkið, sem er myndband á níu skjám, 64 mínútur að lengd, var fyrst sett upp í Migrossafninu í Zürich árið 2012. Breska blaðið The Guardian valdi The Visitors besta listaverk 21. aldarinnar, þegar það gerði upp fyrstu tvo áratugi aldarinnar í september 2019. „Verkið hefur farið sigurför um helstu listasöfn heims og hefur einungis einu sinni áður verið sýnt á Íslandi, í Kling & Bang 2013,“ segir í tilkynningu frá Listasafninu á Akureyri.

Ragnar Kjartansson er fæddur 1976. Hann nam við Listaháskóla Íslands, Konunglegu Akademíuna í Stokkhólmi og Hússtjórnarskólann í Reykjavík. Einkasýningar hans hafa verið haldnar í mörgum af virtustu listasöfnum heims og hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009.

Hafdís Helgadóttir, án titils, 2021.

Ný og splunkuný

Á laugardaginn verður einnig opnuð safnsýningin Ný og splunkuný, en þar má sjá nýleg verk úr safneign Listasafnsins.

„Því ber að fagna að nú getur Listasafnið á Akureyri aftur hafist handa við kaup á verkum í safneignina. Sýningin Ný og splunkuný gefur yfirlit yfir verk sem safninu hafa verið gefin á síðustu árum, en hafa ekki verið sýnd ásamt splunkunýjum verkum sem safnið hefur keypt,“ segir í tilkynningu.

„Eitt af meginhlutverkum listasafna er að safna myndlist og miðla safneigninni, enda mikilvægt að safna með reglubundnum hætti listaverkum sem endurspegla listasöguna.

Í söfnunarstefnu Listasafnsins segir meðal annars: Söfnunarsvið Listasafnsins á Akureyri er allt landið en jafnframt leggur safnið sérstaka áherslu á söfnun verka sem tengjast Norðurlandi. Móttaka gjafa takmarkast af því markmiði að Listasafnið byggi upp heillega og markvissa safneign.“

Listamenn: Agnieszka Sosnowska, Björg Eiríksdóttir, Gísli Guðmann, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Hafdís Helgadóttir, Hafliði Hallgrímsson, Jan Voss, Jónborg Sigurðardóttir – Jonna, Karl Guðmundsson, Kristín K. Þórðardóttir Thoroddsen, Lilý Erla Adamsdóttir, Níels Hafstein og Sigtryggur Bjarni Baldvinsson.

Sýningarstjóri beggja sýninga er Hlynur Hallsson.

Sýningarnar verða opnaðar klukkan 15.00 á laugardaginn.