Fara í efni
Menning

Benni Hemm Hemm á Græna hattinum í kvöld

Benni Hemm Hemm heldur tónleika á Græna hattinum í kvöld til að halda upp á útkomu Lendingar, fjórtándu breiðskífu hljómsveitarinnar.

„Það er alltaf stuð þegar Benni Hemm Hemm spilar á Græna hattinum og í þetta skiptið verður stuðið í hámarki og slagarar plötunnar sem hafa fengið að hljóma í útvarpinu upp á síðkastið fá allir að njóta sín á besta tónleikastað landsins,“ segir í tilkynningu.

Með hljómsveitinni leika Margrét Arnardóttir, harmónikkuleikari, Páll Ivan frá Eiðum, baritónrafmagnsgítarleikari, Ívar Pétur Kjartansson, trommuleikari, Ragnar Helgi Ólafsson, rafmagnsgítarleikari, Thoracius Appotite, rafmagnsgítarleikari, Kári Hólmar Ragnarsson, básúnu- og hljómborðsleikari, Elsa Kristín Sigurðardóttir, kornettleikari, Áki Ásgeirsson, trompetleikari, Sturlaugur Jón Björnsson, bassaleikari, Ingi Garðar Erlendsson, básúnuleikari og Benedikt H. Hermannsson, gítarleikari og söngvari.