Fara í efni
Menning

Benedikt búálfur er kominn á kreik hjá LA

Glatt var á hjalla á fyrsta samlestri leikara og listrænna stjórnenda á fjölskyldusöngleiknum Benedikt búálfi á mánudaginn, þegar hópurinn hittist í fyrsta skipti. Leikfélag Akureyrar, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, setur á svið hinn ævintýralega og vinsæla fjölskyldusöngleik um búálfinn, eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson, og verður frumsýning í mars. Söngleikurinn, sem var frumsýndur árið 2002, er einn allra þekktasti barnasöngleikur þjóðarinnar og hefur töfrandi saga og grípandi tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar unnið hug og hjörtu íslenskra barna á öllum aldri, að því er segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.

Benedikt búálfur er byggður á samnefndum bókum eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og fjallar um vinina Benedikt búálf og Dídí mannabarn, og ferðalag þeirra um Álfheima. Tóta tannálfi hefur verið rænt og allur Álfheimur er í hættu. Vinirnir leggja af stað og á leiðinni lenda þau í ýmsum ævintýrum og ásamt dreka, blómálfum og alls konar furðuverum hjálpast þau að við að bjarga Álfheimum.

Með hlutverk Benedikts fer Árni Beinteinn Árnason en aðrir leikarar eru Björgvin Franz Gíslason, Valgerður Guðnadóttir, Króli (Kristinn Óli Haraldsson), Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson og Birna Pétursdóttir. Miðasala er hafin.