Fara í efni
Menning

Barnamenningarhátíð hefst um helgina

Rapparinn Saint Pete. Mynd: Akureyrarbær

Barnamenningarhátíð Akureyrarbæjar hefst um helgina. Í boði verða fjöldinn allur af spennandi viðburðum fyrir börn á öllum aldri, en hátíðin stendur allan aprílmánuð, og nær hámarki á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, með tónleikum Sumartóna. Þá stíga á svið í Hofi rapparinn Saint Pete og hin unga og hæfileikaríka Karólína Orradóttir. Enginn aðgangseyrir er á viðburði Barnamenningarhátíðar.

Manndýr, dans og listasmiðjur

Viðburðir helgarinnar eru fjölbreyttir, en til að mynda verður þátttökusýningin Manndýr á laugardeginum. Verkið var frumsýnt 2022 í Tjarnarbíó og hefur verið sinnt 80 sinnum víða á Íslandi og erlendis við mjög góðar undirtektir. Tvær sýningar verða í boði.

Á sunnudeginum verður skapandi dansnámskeið fyrir krakka í boði Bunnyverse Company. Námskeiðið tileinkar sér ekki ákveðinn dansstíl og hentar því vel öllum börnum, hvort sem þau hafa reynslu af dansi eða ekki. Hugmyndin á rætur sínar í sýningu og hugmyndafræði dansverksins Kanlínudans.

Þetta er bara brot af því sem verður í boði á Barnamenningarhátíð. Skoðaðu dagskrána á barnamenning.is.