Menning
Barnamenning, Andrea og Prettyboitjokko
08.04.2026 kl. 19:00
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Barnamenningarhátíð er hafin, og nóg á seyði fyrir unga fólkið í bland við aðra viðburði. HÉR má skoða viðburðadagatal Barnamenningarhátíðar.
Tónleikar
- Deep Purple heiðurstónleikar í Hamraborg í Hofi. Vintage Caravan, Tómas Jónsson og Eyþór Ingi flytja. Föstudaginn 10. apríl kl. 21:00.
- Andrea Gylfa - Tólf tóna kortérið á Listasafninu - Laugardaginn 11. apríl kl. 15:00 og aftur kl. 16:00.
- Flammeus á R5 bar - Fimmtudaginn 9. apríl kl. 21:00.
- Björk Viggósdóttir á LEYNI - Fimmtudaginn 9. apríl kl. 20.00.
- PATRIK aka Prettyboitjokko á Græna - laugardaginn 11. apríl kl. 21:00.
Listasýningar
- Listasmiðja með Björk Viggósdóttur sem sýnir um þessar mundir á Listasafninu - Hreyfing fyrir sjón. Smiðjan er fyrir börn í 3.-6. bekk og er kennt laugardag og sunnudag 11. og 12. apríl á milli 11-13. Barnamenningarhátíð, ókeypis þáttaka en skráning nauðsynleg.
- Kattakverfið, myndlistarsýning Örnu G Valsdóttur og Aðalsteins Þórssonar í Deiglunni, Listagilinu á Akureyri. 11. - 19. apríl.
- Sögur á iði - Sýning fjöltyngdra barna á Leikskólanum Iðavelli - sýnt á Amtsbókasafninu 8. - 30. apríl. Hluti barnamenningarhátíðar.
- Erlingur Valgarðsson/elli - Útlínur og form, myndlistarsýning í Mjólkurbúðinni. Opið 8. - 12. apríl á milli 15-18.
- Tales from moss and fern - myndlistasýning Terezu Kocián á Leyni. Opið á opnunartíma Leyni, 13-23, til 23. apríl.
- Saga Íslands: 2. hluti - Eiríkur Páll Sveinsson prentaði út internetið í árdaga þess.
- Úlfur Logason - Guð launi þér – Myndlistarsýning.
- Hughrif - Litir - Form I - Valin verk fyrir sköpun og fræðslu.
- Ævintýraglugginn - GLUGGINN Hafnarstræti 88. Þreföld afmælisveisla, barnafmæli, dúkku- og dýraafmæli og barbíafmæli. Sýningin er uppi til. 1.maí.
- Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
- Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
- Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
- Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.

Barnamenningarhátíð er hafin og stendur út apríl. Fullt af spennandi viðburðum fyrir alla fjölskylduna.
Leiksýningar
- Birtíngur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, fimmtudag 10. apríl og laugardag 11. apríl kl. 20.00. Síðustu sýningar.
- Manndýr - Þáttökusýning á barnamenningarhátíð. Rósenborg, laugardaginn 11. apríl kl. 13 og 15.30.
- Átta konur - Leikfélag Hörgdæla að Melum. Föstudag 10. apríl og laugardag 11. mars kl. 20.00. Síðasta sýningarhelgi.
- Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Síðasta sýningarhelgi. Sýningar föstudaginn 10. apríl og laugardag 11. apríl kl. 20.00.
Viðburðir
- Leirmótun fyrir börn og fullorðna - barnamenningarhátíð. Leiðbeinandi er Elín Berglind Skúladóttir. Laugadagurinn 11. apríl kl. 9-13. Hluti barnamenningarhátíðar, ekkert gjald en skráning nauðsynleg.
- Myndasögur og mangagerð - Fyrir 13-15 ára. Margrét Sóley leiðbeinir. Barnamenningarhátíð - ókeypis inn en skráning nauðsynleg. Laugardaginn 11. apríl kl. 10-16 og sunnudagur 12. apríl kl. 10-15.
- 20 ár í leik og list - leikskólinn Hólmasól. Afmælissýning á Amtsbókasafninu í apríl. Hluti barnamenningarhátíðar.
- Dansnámskeið frá Bunnyverse Company - Skapandi námskeið fyrir krakka 7-10 ára. Sunnudaginn 12. apríl kl. 13-14 í íþróttahúsi Oddeyrarskóla. Hluti barnamenningarhátíðar, skráning óskast.
- Bar-svar Landverndar á Götubarnum - laugardaginn 11. apríl kl. 18.00.
- Salsakvöld og ókeypis prufutími í salsa - Vamos. Fimmtudaginn 9, april kl. 20.00.
- Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
- Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 24. mars er næsti hittingur.
- Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.