Fara í efni
Menning

Auglýsa styrki fyrir Barnamenningarhátíð

Sýning á verkum barna í Listasafninu á Akureyri árið 2021.

Frestur til að sækja um styrki vegna verkefna og viðburða sem tengjast Barnamenningarhátíð á Akureyri 2022 rennur út 16. janúar nk. „Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og eru leik- og grunnskólakennarar sérstaklega hvattir til að sækja um styrki til verkefna á vegum skólanna,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

„Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum.“

Nefnt er að mikilvægt sá að umsækjendur kynni sér vel verklagsreglur um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri. Hér eru reglurnar.

Nánari upplýsingar um Barnamenningarhátíð á Akureyri 2022 eru hér.