Fara í efni
Menning

Átta konur, Jónas Sig og Jón Nordal

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.

Leiksýningar

  • Birtíngur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, föstudag og laugardag 6. og 7. mars kl. 20.00.
  • Átta konur - Frumsýning hjá Leikfélagi Hörgdæla að Melum. Fimmtudaginn 5. mars kl. 20:00. 2. og 3. sýning föstudag og laugardag 6. og 7. mars kl. 20.00.
  • Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Sýningar föstudag og laugardag, 27. og 28. feb kl. 20.00.

Tónleikar


Viðburðir

  • Ilmur, angan og fnykur: Ýmis lykt í íslenskum heimildum - fyrirlestur sagnfræðingsins Ragnhildar Bjartar Björnsdóttur á Minjasafninu. Hluti fyrirlestraraðarinnar Fortíðin í nýju ljósi. Fimmtudaginn 5. mars kl. 17:00.
  • Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
  • Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 10. mars er næsti hittingur.
  • Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
  • Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.

 

Sýningin Sköpun bernskunnar 2026 var opnuð síðustu helgi. Myndir: Listak


Listasýningar

  • Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
  • Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
  • Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
  • Vítahringur / Vicious circle - Listasýning Ólafs Sveinssonar og Boaz Yosef Friedman í Mjólkurbúðinni. Opið laugardag 28. feb og sunnudag 1. mars á milli 14-17.
  • Litasinfóníur - myndlistasýning Rósu Njálsdóttur á Bókasafni HA. Þar eftir er opið á opnunartíma bókasafnsins.
  • Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.

Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.