Ásdís Arnardóttir sýnir verk í Dyngjunni
Sýning á verkum Ásdísar Arnardóttur verður opnuð í listhúsinu Dyngjunni í Fífilbrekku í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 1. ágúst kl. 13.
Verkin sem Ásdís sýnir í Dyngjunni eru að mestu leyti unnin í eða út frá ferðalögum. Flest með handverks og sagnakonum í friðlandi Hornstranda, eitthvað frá Tröllaskaga líka. Ásdís leitast við að draga fram það sem henni þykir einkenna landið, fólkið, dýrin. Hún notar til þess endurunninn pappír sem má ekki henda og liti sem góð vinkona hefur unnið úr molum úr fornum jarðlögum.
Í tilkynningu um sýninguna segir: „Listamaðurinn David Hockney talaði um mikilvægt þess að horfa og sjá, með báðum augum. Á ferð um eyðibyggðir fjarri ys og þys, horfa, sjá, skynja. Að vera umkringd sagnakonum, handverkskonum og finnast það eftir á óraunverulegt. Hlusta á sögur af fólki og firnindum, lífsbaráttunni. Fylgjast með refum sem láta sem ekkert sé. Dýfa sér í úthafið, kalt. Fá að gjöf liti sem unnir eru úr jarðlögum sem biðu þolinmóð, sjá allt í einu að þeir eru út um allt. Láta það kveikja í sér.“

Ásdís Arnardóttir er fædd á Akranesi 1963. Hún nam myndlist við Myndlistarskólann á Akureyri 1995-96 og útskrifaðist frá málunardeild Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1999. Hún lauk mastersgráðu við kennaradeild Listaháskóla Íslands árið 2011. Á námsárum í MHÍ nam hún einnig við Accademia di Belle Arti í Bologna á Ítalíu.
Ásdís er félagi í Sambandi íslenskra myndlistarmanna, SÍM, og hefur tekið þátt í sýningum hérlendis og erlendis. Árið 2008 hlaut hún viðurkenningu fyrir verk sín á alþjóðlegri sýningu vatnslitamálara, Baltic Bridges í Kaunas í Litháen. Hún hefur þar að auki unnið á listasöfnum sem og við kennslu listnema.
Ásdís vinnur aðallega verk með vatnslitum á pappír auk teikninga og bókverka. Náttúra og samfélag er henni hugleikið og birtist það í verkum hennar á fjölbreyttan hátt.

Kunnugir átta sig mögulega á því að hér er Ásdís að fást við Þverbrekkuhnúk í Hörgársveit.