Fara í efni
Menning

Áróður Álfrúnar til sýnis í Listagilinu

Áróður er myndlistasýning Álfrúnar Axels sem opnuð verður í dag klukkan 17.30 í Rösk rými í Listagilinu. Álfrún Axels er ungur myndlistamaður og er þetta fyrsta einkasýning Álfrúnar.

Um sýninguna segir, í tilkynningu:

„Sýningin Áróður er málverkasýning sem bendir á það sem er athugunarvert í nútíma samfélagi og einkalífi fólks. Pólitísk skírskotun er stórt viðfangsefni Álfrúnar sem keppist við að svipta hulunni af tilhugalífi hversdagsins með verkum sínum.

Aðalmarkmið Álfrúnar er að listaverkin veiti uppljómun eða nýtt sjónarhorn í hugarfari áhorfanda en oftar en ekki er einhverskonar ágreiningur eða ádeila bakvið hvert verk.“

Á sýnungunni verða flest verkin til sölu á uppboði. Verðgrunnur er merktur við hvert verk en hægt er að bjóða í verkin með því að tala við listakonuna á staðnum eða senda tilboð með heiti verksins á; alfrunaxels@icloud.com

Sýning Álfrúnar, Áróður, stendur til miðvikudags 28. september og opið alla daga frá 14 til 17.