Fara í efni
Menning

Árni Pétur leikur á móti Eddu í Hamingjudögum

Árni Pétur Guðjónsson leikur á móti Eddu Björgu Eyjólfsdóttur í verkinu Hamingjudagar eftir Samuel Beckett sem sýnt verður í Black Box í Hofi í byrjun september. Þetta kemur fram á vef Menningarfélags Akureyrar.

Verkið verður sýnt tvær helgar í Hofi, 2. og 3., og 9. og 10. september, áður en sýningar hefjast í Reykjavík. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir.

„Árni Pétur hefur leikið í fjölda kvikmynda á borð við Agnes, Sódóma Reykjavík, Stella í Orlofi, Tár úr steini og Vandarhögg eftir Hrafn Gunnlaugsson en sú var tekin upp á Akureyri,“ segir á vef MAk. „Hann hefur einnig leikið í fjölda uppsetninga í leikhúsunum og þar á meðan einleiknum Svikarinn sem færði honum tilnefningu til Grímunnar, Rómeó og Júlíu með Vesturporti og Svört Kómedía hjá Leikfélagi Akureyrar í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Að ógleymdri sprenghlægilegu sjónvarpsseríunni Hæ Gosa sem öll var tekin upp á Akureyri. Svo er ekkert verra að hann á ættir að rekja hingað norður en afi hans, Pétur Sigurgeirsson, var frá Oddstöðun í N-Þingeyjarsýsu.“