ÁLFkonur sýna í 14. sinn í Lystigarðinum

ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna „Innrammað“ við LYST í Lystigarðinum á morgun, föstudaginn 6.júní.
Þetta er í 14. sinn ÁLFkonur bjóða upp á ljósmyndasýningu við útisvæðið og veitingasöluna í garðinum, í samvinnu við Lystigarðinn og LYST.
ÁLFkonur er félagsskapur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli. Þær hafa starfað saman sem hópur frá árinu 2010 og haldið fjölmargar ljósmyndasýningar víða um Akureyri og Eyjafjörð, á Húsavík og í Edinborg Skotlandi. Að þessu sinni takast ÁLFkonur á við hugtakið „innrammað“ og túlka myndefnið hver á sinn hátt.
Að þessu sinni eru þátttakendur: Agnes H. Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Gunnlaug Elísabet Friðriksdóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.