ÁLFkonur á stefnumóti við fortíðina
Laugardaginn 6. júní kl. 15 opna ÁLFkonur nýja ljósmyndasýningu í Lystigarðinum en það er áralöng hefð hjá þeim að setja upp nýja sýningu þar í sumarbyrjun. Að þessu sinni ber sýningin yfirskriftina Stefnumót við fortíðina því valdar voru nokkrar 100 ára gamlar ljósmyndir frá Akureyri og reynt að taka nýjar myndir á því sem næst sama stað og ljósmyndarinn stóð á 100 árum fyrr. Gömlu myndirnar verða með þeim nýju á sýningunni, til að betur sé hægt að átta sig á breytingum síðustu 100 ára.
ÁLFkonur er félagsskapur kvenna og áhugaljósmyndara á Eyjafjarðarsvæðinu sem hafa starfað saman í 16 ár og er þetta 15. sýningin í Lystigarðinum. Í tilkynningu frá ÁLFkonum segir að þemað að þessu sinni hafi verið valið í tilefni af 100 ára afmæli Ljósmyndarafélags Íslands sem er á þessu ári. Stofnfundurinn var haldinn 1926 og mættu til hans 18 ljósmyndarar, þar af 3 konur, sem flest störfuðu þó í Reykjavík.

Mynd Agnesar H. Skúladóttur, tekin neðst í Kaupvangsstræti á þessu ári, og mynd Vigfúsar Sigurgeirssonar frá sama stað 100 árum fyrr.
„Hugmyndin var að vinna með 100 ára gamlar ljósmyndir frá Akureyri sem varðveittar eru á Minjasafninu á Akureyri og reyndum að finna staðinn þar sem ljósmyndarinn stóð þegar hann tók myndina,“ segir í tilkynningunni. Nýjar og gamlar bæjarmyndir eiga því stefnumót í Lystigarðinum fram á næsta vor. Allir eru velkomnir á sýningaropnunina á laugardaginn og síðan verður hægt að skoða myndirnar á opnunartíma Lystigarðsins næstu mánuði. Aðgangur er ókeypis.
Þátttakendur að þessu sinni eru þær Agnes H. Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Gunnlaug E. Friðriksdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.