Fara í efni
Menning

Akureyrarpistlarnir komnir út á bók

Akureyrarpistlar Sigmundar Ernis Rúnarssonar, sem birtust fyrst um tveggja ára skeið á akureyri.net eru komnir út á bók sem útgáfufélagið Tindur sendir frá sér nú á haustdögum.

Óhætt er að segja að þessi hnyttnu og skemmtilegu minningarbrot norðlenska rithöfundarins hafi vakið verðskuldaða athygli á vefnum á sínum tíma, enda safnaði þar skáldið saman mörgum þeim áhugaverðustu atvikum æskunnar frá sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar þar sem nýtni og sparsemi voru leiðarstefið í lífi fólks fyrir botni Eyjafjarðar á tímum hafta, skorts og óðaverðbólgu.

Sá horfni og sérstæði tími lifnar ljóslifandi á síðum nýrrar bókar, sem fengið hefur heitið Barnabók – 101 saga af Akureyri æsku minnar, og er ekki laust við að hann virðist vera býsna forneskjulegur í samanburði við þá efnislegu ofgnótt sem einkennt hefur nýja öld, segir í tilkynningu frá útgefanda.

„Konfektkassi“

„Mér fannst það beinlínis vera skylda mín sem gamals Akureyrings, sem hefur aldrei slitið taugina við sinn kæra heimabæ, að varðveita þessa munnlegu geymd í stuttum minningarbrotum, sem ella hefðu ratað í glatkistuna með tíð og tíma,“ segir Sigmundur Ernir og rifjar upp dagana þegar þeir Skapti Hallgrímsson, ritstjóri akureyri.net ræddu saman við upphaf pistlaskrifanna á haustdögum 2023. „Bæjarbragurinn upp úr miðri síðustu öld og fjölskyldulífið var með allt öðrum hætti en þekkist nú til dags, og má að mörgu leyti líkja við sjálfsþurftarbúskap á hverju heimili þar sem öll veraldleg gæði voru gatnýtt til enda, og virðingin fyrir verðmætum var næstum trúarleg,“ bætir gamli brekkusnigillinn við, sem alinn var upp á Syðri-Brekkunni.

„Í mínum huga er bókin konfektkassi, slíka angan sem leggur af hverri sögu,“ segir Helgi Jónsson, útgefandi bókarinnar, og kveðst stoltur af því að hafa þær nú á einum og sama staðnum í fallega hannaðri bók. „Það er ábyrgðarhluti að geyma og varðveita þennan ótrúlega tíma á góðum stað,“ segir forvígismaður Tinds.