Fara í efni
Menning

Agnes og Ólöf eru Norðurljósin 2023

Norðurljósin 2023: Ólöf Birna Kristjánsdóttir, níu ára, og Agnes Emma Charlesdóttir Guanci, sex ára.

Agnes Emma Charlesdóttir Guanci, sex ára, og Ólöf Birna Kristjánsdóttir, níu ára, voru valdar Norðurljósin 2023, eftir hæfileikakeppni sem haldin var í tengslum við jólatónleikana Jólaljós og lopasokkar sem verða haldnir í Hofi á Akureyri laugardaginn 2. desember. Stelpurnar munu koma fram á tónleikunum og syngja þar jólalag við undirleik hljómsveitar kvöldsins.

Fjöldi umsókna barst inn en fólk tók þátt með því að senda inn upptökur af sér. Fólki var velkomið að sýna þann hæfileika sem það kaus helst en þó voru flestir sem ákváðu að syngja. Dómnefnd var svo fengin til að velja einn sigurvegara, en eftir miklar umræður reyndist það ómögulegt. Þess vegna ákvað dómnefnd að velja tvo sigurvergara, þær Agnesi og Ólöfu.

Þær verða meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum ásamt Drottningum, Jónínu Björtu Gunnarsdóttur, Kristjönu Arngrímsdóttur, Björgvini Franz Gíslasyni og Vilhjálmi B. Bragasyni. Auk þeirra verða á sviðinu Sönghópurinn Rok, fimm manna hljómsveit og dansarar.