Aðalheiður sýnir Frjó og flæði á Leyni
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar sýninguna Frjó og flæði á Leyni, Hafnarstræti 95 á Akureyri, í dag fimmtudag kl. 18. Þar verður einnig gjörningur með listakonunni, sem hefst klukkan 18:30. Sýningin stendur til 21. október.
Í fréttatilkynningu segir að í verkunum sé unnið með hringlaga form, liti og endurtekningu. Aðalheiður lýsir ferlinu sem flæði frá huga til handar og áfram yfir á myndflötinn, þar sem form skarast og mynda lífrænar birtingarmyndir. „Litur mætir lit og rammar inn hugmynd sem flæðir eins og af sjálfu sér yfir myndflöt og hefur samtal við samhliða form,“ segir í lýsingu á sýningunni.
Verkin eru unnin úr hugmyndum og augnablikum sem safnast hafa upp frá apríl til október á þessu ári. Hringferð, hringlaga hugsun og hringöndun eru meðal þeirra hugtaka sem liggja til grundvallar sýningunni, þar sem frjó og hugmyndir ýmist falla í jarðveg eða svífa um í „þyngdarleysi hversdagsins“.

Aðalheiður Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði árið 1963 en fluttist til Akureyrar árið 1986. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri á árunum 1989-1993 og hefur síðan starfað við myndlist og haldið fjölda einkasýninga hér á landi og erlendis. Á ferli sínum hefur hún sett upp ríflega 200 einkasýningar í 14 löndum. Verk eftir hana er meðal annars að finna í Listasafninu á Akureyri og Listasafni Reykjanesbæjar auk einkasafna hér heima og erlendis.
Aðalheiður hefur jafnframt verið virk í menningarlífi á Norðurlandi. Hún starfrækti Kompuna, gallerí á Akureyri, í átta ár, tók þátt í uppbyggingu Listagilsins og er einn af stofnendum Verksmiðjunnar á Hjalteyri. Hún keypti Alþýðuhúsið á Siglufirði árið 2011 og hefur þar komið upp vinnustofu auk þess að standa fyrir reglulegum menningarviðburðum. Hún var útnefnd Bæjarlistamaður Akureyrar árið 2000 og Bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2022. Hún hlaut einnig menningarverðlaun DV árið 2015 og Eyrarrósina árið 2023.
Sýningin Frjó og flæði stendur yfir á Leyni frá 8. til 21. október.