Fara í efni
Menning

A! Gjörningahátíð haldin í áttunda skipti

Tricycle Trauma - Áki Sebastian Frostason - Katrin Hahner

A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri dagana 6.-9. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og nú í áttunda sinn. Ókeypis er inn á alla viðburði.

Dómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Hlöðunni í Litla-Garði, Deiglunni, Kaktus, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi.

Þátttakendur eru: Anna Kolfinna Kuran, Áki Sebastían Frostason, Dýrfinna Benita Basalan, Einkasafnið, Kaktus, Katrin Hahner, Olya Kroyter, Rashelle Reynevald, Rösk, Tricycle Trauma, Vídeólistahátíðin Heim og Örn Alexander Ámundason.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar, Gilfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Að auki verða viðburðir utan dagskrár.