Fara í efni
Menning

A! Gjörningahátíð á Akureyri – MYNDIR

Rösk á A! Gjörningahátíðinni á dögunum.

A! Gjörningahátíð fór fram á Akureyri á dögunum í áttunda sinn. A! er haldin árlega og er eina hátíðin á Íslandi sem einbeitir sér einungis að gjörningalist. Að þessu sinni tóku þátt 23 alþjóðlegir listamenn, frá Króatíu, Rússlandi, Bandaríkjunum, Póllandi og Íslandi: Áki Sebastian Frostason, Dýrfinna Benita Basalan, Kaktus, Katrin Hahner, Olya Kroyter, Rashelle Reyneveld, Rösk, Tricycle Trauma og Örn Alexander Ámundason. Að þessu sinni fóru gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Hlöðunni í Litla-Garði, Deiglunni, Kaktus, Einkasafninu og á Ketilkaffi.

A! Gjörningahátíð er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Gilfélagsins, Vídeólistahátíðarinnar Heim, Listnámsbrautar VMA og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. A! er styrkt af Safnasjóði og verður næst haldin 5. til 8. október 2023.

Áki Sebastian Frostason

Dýrfinna Benita Basalan

Kaktus

Olya Kroytor

Pastel

Tricycle Trauma

Örn Alexander Ámundason