Fara í efni
Menning

75 MH-ingar syngja í Glerárkirkju í dag

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika í Glerárkirkju í dag, föstudaginn 17. apríl í Glerárkirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 18.00 og er aðgangur ókeypis.
 
Í kórnum eru 75 ungmenni, á aldrinum 16-19 ára, sem munu flytja þekktar kórperlur í bland við nýleg kórverk. Þau sjá einnig um kynningar og skýra tilurð laga og ljóða. Stjórnandinn, Hreiðar Ingi Þorsteinsson, segir kórinn ætla að fagna vorkomunni með nýrri raddsetningu af laginu Vorið kemur eftir Valgeir Guðjónsson.
 
Akureyri.net fékk þessa bráðskemmtilegu mynd af kórnum með tilkynningu um tónleikana. Myndina gerði einn kórfélaganna.

 

asdf