Fara í efni
Menning

23 sýningar á 30 ára afmæli Listasafnsins

Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, virðir fyrir sér hluta sýningar Ragnars Kjartanssonar sem opnuð verður á laugardaginn. Listamaðurinn sjálfur á risaskjá í baksýn. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Sýningarár Listasafnsins á Akureyri hefst með hvelli á laugardaginn þegar tvær sýningar verða opnaðar. Önnur þeirra er The Visitors, heimsþekkt verk Ragnars Kjartanssonar – áhrifamikið myndbandsverk á níu stórum skjám.

Eins og Akureyri.net greindi frá í gær valdi breska dagblaðið The Guardian verk Ragnars besta listaverk fyrstu tveggja áratuga þessarar aldar! Það var fyrst sett upp í Migrossafninu í Zürich árið 2012. Verkið er til í sjö eintökum og alltaf einhvers staðar til sýnis. Það hefur aðeins einu sinni áður verið sýnt á Íslandi, í Kling og Bang 2013.

30 ára afmæli – 23 sýningar

Listasafnið á Akureyri var stofnað 1993 og 30 ára afmælinu verður því fagnað á árinu. Alls verða settar upp 23 sýningar í ár.

Auk verks Ragnars Kjartanssonar verður á laugardag opnuð safnsýningin Ný og splunkuný, en þar má sjá nýleg verk úr safneign Listasafnsins.

Á meðal annarra listamanna á árinu eru Ásmundur Ásmundsson, Brynhildur Kristinsdóttir, Dröfn Friðfinnsdóttir, Guðjón Ketilsson, Melanie Ubaldo, Inga Lísa Middleton, Sigurður Guðjónsson, Sara Björg Bjarnadóttir og Sigurður Guðjónsson. Einnig verða fastir liðir á dagskrá eins og A! Gjörningahátíð, Sköpun bernskunnar og nemendasýningar VMA og Myndlistaskólans.

Að neðan eru myndir af nokkrum verkum sem sýnd verða á safninu í ár.

Dröfn Friðfinnsdóttir, Úr fjarlægð, trérista 1994

Samstarf við Hlíð

„Samstarf við ólíka hópa er mikilvægur þáttur í starfsemi Listasafnsins á Akureyri,“ segir Hlynur Hallsson, safnstjóri. „Við erum sífellt að leita leiða til að útvíkka starfsemina og gera safneignina aðgengilega öllum aldurs- og þjóðfélagshópum. Það er mjög ánægjulegt að segja frá því að í ár er bryddað upp á þeirri nýbreytni að vinna heildstæðar sýningar frá grunni og setja upp utan safnsins sjálfs. Listasafnið og Hjúkrunarheimilið Hlíð vinna saman að því að fræða og gleðja íbúa, starfsfólk og gesti Hlíðar með tveimur sýningum undir yfirskriftinni Hér og þar I-II. Þessum sýningum er ætlað að viðhalda menningarlegri tengingu íbúa við myndlistarsögu bæjarins og vekja upp minningar og samræðugrundvöll um myndlist og samfélagið. Munum við í kjölfarið bjóða gestum Hlíðar upp á leiðsögn og fræðslu um sýningarnar tvær,“ segir Hlynur.

Ragnar Kjartansson, The Visitors, 2012

Safnið að innan á afmælisári

Haldið verður upp á 30 ára afmæli Listasafnsins með sérstökum afmælisvikum í ágúst og þemanu Safnið að innan. Þá verður boðið upp á leiðsögn þar sem fólk getur fræðst um það sem gerist á milli sýninga og í aðdraganda uppsetningar á nýjum sýningum. „Á tímabilinu sem um ræðir er verið að setja upp sjö nýjar sýningar í níu sýningarýmum og þar af leiðandi í mörg horn að líta,“ segir Hlynur. „Gestum býðst að skyggnast á bak við tjöldin og geta því upplifað þennan annasama og spennandi tíma í safninu og fá þannig innsýn í þá starfsemi safnsins sem oftast er ekki aðgengileg gestum. Þeim gefst jafnframt kostur á að hitta listamenn og starfsfólk.“

Tales Frey, Sissyparity, 2020

Þriðjudagsfyrirlestrar og fræðslustarf

Þriðjudagsfyrirlestrar hófu að nýju göngu sína í síðustu viku og verða áfram stór þáttur í fræðslustarfi Listasafnsins, en þeir eru settir upp í samvinnu við Verkmenntaskólann á Akureyri, Myndlistarfélagið, Menntaskólann á Akureyri og Gilfélagið. Fyrirlestrarnir eru sem fyrr haldnir á hverjum þriðjudegi kl. 17-17.40 yfir vetrartímann. Sem fyrr verður fræðslustarf Listasafnsins kraftmikið og í gangi allt árið þar sem verður m.a. boðið upp á almenna leiðsögn, fjölskylduleiðsögn, smiðjur og vinnustofur.

„Listasafnið á Akureyri er í eigu Akureyrarbæjar og starfar í þágu almennings. Rekstrarkostnaður safnsins greiðist úr bæjarsjóði í samræmi við fjárhags- og starfsáætlun ár hvert. Safnið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Bæjarráð myndar stjórn Listasafnsins á Akureyri. Listasafnið á Akureyri er viðurkennt safn og fær stuðning frá Safnaráði. Aðrir bakhjarlar eru Norðurorka, Geimstofan, N4, Stefna og Dagskráin,“ segir í tilkynningu frá safninu.

Árbók safnsins er nú öllum aðgengileg og gjaldfrjáls í anddyri safnsins auk valdra staða á Akureyri og víðar.

Árbókina má einnig nálgast hana rafrænt á heimasíðu Listasafnsins – sjá hér

Sigurður Guðjónsson, Enigma