Fara í efni
Menning

19. júní: Tónleikar og sögukvöld í Hofi

Í Svarta kassanum í Menningarhúsinu Hofi verður dagskrá í kvöld kl. 20 sem nefnist Í fótspor þeirra. Þetta eru tónleikar og sögukvöld sem haldnir eru í tilefni af Kvenréttindadeginum 19. júní og eru jafnframt hluti af dagskrá Hinsegin daga á Norðurlandi.

Í fréttatilkynningu segir að á tónleikunum sé fylgt slóðum listafólks sem lét rödd sína heyrast og notaði tónlistina til að tjá vonir, mótmæli, frelsisþrá og mannlega reynslu. Á milli laga eru stuttar frásagnir sem tengja saman sögur tónskálda og flytjenda á borð við Billie Holiday, Nina Simone, Joni Mitchell, Joan Baez, Kate Bush, Tracy Chapman, k.d. lang, Dusty Springfield og fleiri.

Söngkonan Helga Margrét Clarke sem stendur fyrir viðburðinum.

Efnisskráin spannar jazz, blues, folk og popptónlist og leiðir áhorfendur í gegnum ólík tímabil og ólíka baráttu fyrir sýnileika, frelsi og réttlæti. Þar mætast sögur svartra listamanna, kvenna og hinsegin fólks sem hafa haft áhrif á samfélagið með tónlist sinni. Tónleikarnir eru jafnframt persónuleg ferð þar sem frumsamin lög tengja sögurnar við samtímann og spyrja hvað þessar raddir geti enn kennt okkur í dag.

Í tilkynningunni segir að þetta séu því ekki hefðbundnir tónleikar heldur tónlistarleg frásögn um hugrekki, samkennd, sýnileika og von. „Mig langaði að skapa tónleika sem eru bæði upplifun og samtal við söguna. Margar af þeim réttindabaráttum sem við tökum sem sjálfsögðum í dag eiga sér sterkar rætur í listum og tónlist,“ segir Helga Margrét Clarke söngkona, sem stendur fyrir viðburðinum.

Auk Helgu Margrétar koma fram Róberta Andersen gítarleikari, Ingibjörg Elsa Turchi bassaleikari og Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari. Hægt er að nálgast miða gegnum mak.is eða hér.