Fara í efni
Matur

Samherji: 8,5 milljarða hagnaður eftir skatta

Ísfisktogarinn Harðbakur EA 3. Mynd: Samherji.

Hagnaður Samherja hf. á síðasta ári var 8,5 milljarðar eftir skatta. Tekjur samstæðunnar námu 78,4 milljörðum króna og hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára. Þetta kemur fram á heimasíðu Samherja.

„Ársuppgjör Samherja sýnir að grunnrekstur félagsins er traustur og fjárhagur þess er sterkur. Það gerir Samherja kleift að horfa til frekari fjárfestinga, einkum þeirra sem miða að því að auka samkeppnishæfni félagsins og þar með íslensks sjávarútvegs,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf. 

Hér eru nokkrir punktar úr umfjölluninni um rekstur Samherja á heimasíðu fyrirtækisins.

  • Hagnaður af rekstri (EBIT) var 7,3 milljarðar króna samanborið við 6,1 milljarðs króna hagnað árið áður og jókst því um tæplega 19% milli ára.
  • Aukinn hagnaður skýrist öðru fremur af háu afurðaverði á botnfiskmörkuðum og traustum rekstri. Hagnaður eftir skatta nam tæplega 8,5 milljörðum króna.
  • Eignir í lok árs námu 131,3 milljörðum króna og eigið fé nam 99,6 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall í árslok var 75,8%.

Veiðar og vinnsla gengu vel

  • Árið 2025 var gott ár í veiðum, vinnslu, landeldi og sölu afurða. Samherji gerði út flota sjö fiskiskipa á árinu. Um er að ræða fjóra ísfisktogara, tvö uppsjávarskip og einn frystitogara.
  • Ísfisktogarar félagsins lönduðu 26.691 tonni af fersku hráefni á síðasta ári.
  • Mestur var aflinn í þorski eða 16 þúsund tonn og sem fyrr voru aðrar helstu botnfisktegundir ýsa, ufsi og karfi.
  • Landaður afli ísfisktogara var að langstærstu leyti unninn í fiskvinnslum Samherja á Eyjafjarðarsvæðinu. Annars vegar í landvinnslunni á Dalvík og hins vegar í landvinnslu ÚA á Akureyri. Þessar fiskvinnslur tóku samtals á móti 33.166 tonnum af hráefni á árinu.

„Það hefur verið markmið okkar að hámarka verðmæti landaðs afla með frekari vinnslu í hátæknivæddum landvinnslum. Við sjáum að viðskiptavinir okkar eru tilbúnir að greiða hærra verð ef þeir fá alltaf sömu gæðabitana, skorna í sömu stærð. Þetta er kjarninn í okkar verðmætasköpun þegar botnfisktegundir eru annars vegar," segir Baldvin Þorsteinsson.

  • Uppsjávarskip Samherja lönduðu 51.287 tonnum af hráefni á árinu. Mest var landað af kolmunna eða 22.262 tonnum.

Aðalfundur Samherja hf. var haldinn 21. maí og þá voru kjörin í stjórn félagsins þau Dagný Linda Kristjánsdóttir, Jón Sigurðsson, formaður stjórnar, Kristján Vilhelmsson, Óskar Magnússon og Eva Bryndís Helgadóttir. Ásta Dís Óladóttir, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands,  gekk þá úr stjórn og Eva Bryndís var kjörin í hennar stað.


Stjórn Samherja hf. ásamt forstjóra. Frá vinstri: Kristján Vilhelmsson, Eva Bryndís Helgadóttir, Jón Sigurðsson, formaður stjórnar, Dagný Linda Kristjánsdóttir, Óskar Magnússon og Baldvin Þorsteinsson, forstjóri. Mynd af vef Samherja.


Viðburðaríkt ár

„Árið 2025 var viðburðaríkt hjá Samherja,“ segir í umfjölluninni á vef fyrirtækisins. „Tímamót urðu þegar stofnendur félagsins, Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson, létu af störfum eftir 42 ára starf hjá félaginu eða frá stofnun þess. Þorsteinn Már í starfi forstjóra og Kristján framkvæmdastjóri útgerðarsviðs. Sjávarútvegur hefur verið ævistarf og ástríða þeirra beggja og náið samstarf þeirra hefur verið kjölfestan í rekstri Samherja alla tíð frá 1983.“

„Þá urðu einnig ákveðin tímamót í rekstri Samherja fiskeldis ehf.“ segir ennfremur, „þegar nýir hluthafar, bæði innlendir og erlendir fjárfestar, komu inn í félagið í kjölfar fjármögnunar Eldisgarðs, nýrrar landeldisstöðvar fyrir lax, á Reykjanesi. Eftir breytingar á hluthafahópnum á Samherji hf. 61,5% eignarhlut í móðurfélagi Samherja fiskeldis eftir að hafa átt tæplega 100% hlutafjár í byrjun ársins.“

Gott ár í sölu og markaðssetningu

Árið 2025 var gott ár í sölu afurða erlendis og voru aðstæður á mörkuðum hagfelldar, að því er segir á vef Samherja. „Þetta endurspeglast í veltuaukningu hjá Ice Fresh Seafood ehf., sölufélagi Samherja, og var aukin eftirspurn eftir flestum fisktegundum á árinu.“

Fram kemur að markaðir fyrir þorskafurðir hafi verið sérstaklega hagstæðir, með vaxandi eftirspurn sem hélt áfram á þessu ári. „Á sama tíma voru markaðsaðstæður fyrir lax og bleikju úr landeldi erfiðari þótt sala hafi almennt gengið vel.“

Framkvæmdasvæði Eldisgarðs í júní 2026. Mynd af vef Samherja: Jón Steinar Sæmundsson

Jákvæð teikn á lofti í fiskeldi

„Samherji hefur stundað fiskeldi á landi með góðum árangri í tæplega aldarfjórðung í gegnum dótturfélagið Samherja fiskeldi. Í dag rekur félagið þrjár seiðastöðvar, þrjár landeldisstöðvar og tvær vinnslur,“ segir á vef Samherja.

Samherji fiskeldi slátraði 5.809 tonnum af óslægðum fiski á síðasta ári. Þar af slátraði félagið 3.140 tonnum af óslægðri bleikju og 2.669 tonnum af óslægðum laxi og hefur félagið aldrei framleitt jafn mikið af laxi á einu ári.

„Þar vegur þungt aukin framleiðslugeta í laxi vegna stækkunar Silfurstjörnunnar í Öxarfirði. Ný vinnsla var tekin í notkun í júní 2025 og var hún lokaáfangi mikilla breytinga á stöðinni. Þar var um að ræða umtalsverðar fjárfestingar sem fólust í stækkun kerja, nýrri seiðastöð auk endurbóta og tölvuvæðingar á vinnslunni. Þetta verkefni heppnaðist afar vel og var ákveðinn prófsteinn fyrir þá tækni og þær framleiðsluaðferðir sem verða í Eldisgarði á Reykjanesi.“

Vinnsluhús Samherja á Dalvík. Mynd af vef Samherja: Sindri Swan.

Hár meðalstarfsaldur

Í lok árs 2025 störfuðu 832 starfsmenn hjá Samherja hf. og dótturfélögum og var meðalfjöldi ársverka á árinu 806. Starfsmönnum fjölgaði nokkuð milli ára. Einkum vegna aukinna umsvifa í tengslum við uppbyggingu Eldisgarðs á Reykjanesi.

„Starfsfólk Samherja er hjartað í starfsemi okkar og lykillinn að árangri félagsins hvort sem um er að ræða veiðar og vinnslu, landeldi, sölu eða skrifstofu. Þess vegna leggjum við ríka áherslu á að ráða hæft starfsfólk og bjóða því gott vinnuumhverfi og aðstöðu. Margir starfsmenn hafa unnið lengi hjá félaginu og meðalstarfsaldur er núna 10,6 ár. Við erum stolt af þeirri tryggð sem endurspeglast í þessum tölum," segir Baldvin Þorsteinsson.

Vefur Samherja