Fara í efni
Mannlíf

„Við erum í skýjunum yfir móttökunum“

Glöð á góðum degi. Frá vinstri: Daníel Viktor Albertsson, Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, Kristján Þór Albertsson, Anna Sóley Albertsdóttir, Albert Þór Magnússon og Eva Þórarinsdóttir, rekstrarstjóri Ginatricot á Íslandi. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Verslun Gina Tricot á Glerártorgi var opnuð með pomp og prakt um helgina. Margir biðu greinilega spenntir því löng röð hafði myndast á ganginum þegar tjaldið féll og verslunin var opnuð á slaginu klukkan 12 á laugardaginn. Fólki var síðan hleypt inn í hollum.

Gina Tricot er við hlið verslunarinnar Lindex en hjónin Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir og Albert Þór Magnússon eru umboðsmenn beggja á Íslandi. 

Hjónin opnuðu Gina Tricot verslun í Kringlunni í Reykjavík á fimmtudaginn þar sem örtröð myndaðist eins og fjallað var um í fréttum og Akureyringar virðast einnig miklir áhugamenn um þetta sænska fatamerki.

Stúlkurnar fremst í röðinni við Gina Tricot biðu spenntar eftir því að verslunin yrði opnuð.

„Þessi helgi hefur verið engri lík og við erum við í skýjunum yfir móttökunum sem Gina Tricot hefur fengið bæði hér fyrir norðan sem og sunnan heiða. Hvern hefði grunað að eins konar rokktónleikar yrðu til við opnun okkar í Kringlunni og svo röð út úr dyrum á Glerártorgi sömu helgi,“ segir Lóa Dagbjört í tilkynningu. „Við erum ótrúlega þakklát okkar samstarfsfólki, samstarfsaðilum og öllum þeim þúsundum viðskiptavina sem gerði þessa stórkostlega helgi að veruleika. Við erum full tilhlökkunar fyrir framhaldinu.“

Gina Tricot opnaði fyrst netverslun í mars á þessu ári sem hefur verið gríðarlega vel sótt, að sögn Lóu Dagbjartar og Alberts Þórs, og opnun verslananna tveggja fylgdi svo í kjölfarið. Þess má geta að umræddar þrjár verslanir eru þær fyrstu í heiminum sem opnaðar eru skv. umboðsmanna fyrirkomulagi Gina Tricot AB, að sögn Alberts Þórs.

Móttökur langt fram úr væntingum

„Við hjá Gina Tricot erum ótrúlega spennt að geta loks boðið vörur og verslunarupplifun okkar til viðskiptavina okkar á Íslandi. Við höfum séð mikla möguleika á íslenska markaðnum og vonuðumst eftir jákvæðri móttöku,“ er haft eftir Ted Boman, forstjóri Gina Tricot AB í Svíþjóð í tilkynningu. „Ótrúlega móttakan sem Gina Tricot fékk við opnun fyrstu tveggja verslana okkar fór langt fram úr þessum væntingum okkar, og við erum ótrúlega þakklátir fyrir hlýjar móttökur frá íslenskum viðskiptavinum okkar.“

Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Glerártorgs, segist einnig afar ánægður í tilkynningu. „Það er okkur sönn ánægja að fá Gina Tricot á Glerártorg. Opnun verslunarinnar heppnaðist ótrúlega vel í alla staði en mikill spenningur hefur verið að magnast upp hér fyrir norðan sem sést best á því að röðin náði út úr dyrum verslunarmiðstöðvarinnar og var viðskiptavinum hleypt inn i hollum. Gina Tricot er stórglæsileg verslun sem bæði eflir og styrkir Glerártorg sem verslunarmiðstöð og við bjóðum þau hjartanlega velkomin,“ segir Sturla Gunnar.

Dóra Júlía lék dynjandi tónlist við opnun verslunarinnar.

 Albert Þór Magnússon skömmu áður en verslunin var opnuð.