Fara í efni
Mannlíf

Verð Besta bitans áfram „frosið“ næsta árið

Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja, lengst til hægri, mætti í verslun Bónus á Norðurtorgi og kynnti viðskiptavinum „Besta bitann“ fyrir sléttu ári. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Heildsöluverð Besta bitans, frosinna þorskhnakka frá Samherja, hefur verið óbreytt síðan varan kom á markað fyrir ári síðan og fyrirtækið tilkynnti í morgun að verð til verslana myndi ekki hækka næstu 12 mánuði. Forstjóri Samherja hvetur verslanir til að bjóða vöruna áfram á sama verði.

Eitt ár er í dag, 29. október, síðan Besti bitinn af þorskinum kom á markað hérlendis og það var söguleg stund því fram að því hafði allur hvítfiskur frá Samherja verið seldur úr landi í liðlega 40 ára sögu fyrirtækisins.

„Með því að halda verðinu óbreyttu vill fyrirtækið leggja sitt af mörkum í því sameiginlega verkefni að halda aftur af verðhækkunum,“ segir í tilkynningu á vef Samherja í morgun.

Theódór Sölvi Haraldsson matreiðslumaður og Sunneva Ósk Guðmundsdóttir framleiðslustjóri Samherja kynntu Besta bitann ásamt Baldvin Þorsteinssyni forstjóra í Bónus á Norðurtorgi þegar varan kom á markað. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Landsmenn kunna að meta góðan fisk

„Þegar Besti bitinn af þorskinum fór á markað þá vildum við bjóða hollan og góðan valkost úr okkar framleiðslu á hóflegu verði. Í núverandi árferði er mikilvægt að allir leggist á eitt og sendi skýr skilaboð í baráttunni við verðbólgu. Því viljum við halda verðinu óbreyttu áfram í eitt ár til viðbótar og hvetjum auðvitað verslanir til að gera slíkt hið sama,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf.

Varan fæst í öllum helstu matvöruverslunum og henni hefur verið vel tekið af neytendum, segir Baldvin. „Við erum mjög ánægð með viðtökurnar sem benda til þess að landsmenn kunni að meta góðan fisk. Einnig er jákvætt ef sala á vörunni eykur í leiðinni vitund almennings um íslenskan sjávarútveg og þær afurðir sem framleiddar eru úr hafinu í kringum landið,“ segir Baldvin.

„Bragðgóður, fljótlegur og hollur valkostur“

Almennt er talið að hnakkinn sé þykkasti og safaríkasti bitinn af þorskinum og er nafnið á vörunni skírskotun til þess. „Um er að ræða hágæðaafurð úr þorski sem veiddur er á djúpslóð og unninn í vinnsluhúsum Samherja á Eyjafjarðarsvæðinu. Skip Samherja eru við veiðar flesta daga ársins og tryggja þannig stöðugt framboð hráefnis sem unnið er af fagfólki í hátæknivinnslum fyrirtækisins. Markmiðið er alltaf að hámarka gæði vörunnar,“ segir á vef fyrirtækisins.

„Þorskhnakkarnir eru seldir frosnir og er hverjum bita pakkað sérstaklega í lofttæmdar umbúðir. Varan er því einstaklega aðgengileg og hentug til matreiðslu hvort sem elda á einn bita eða fleiri. Þorskhnakki er allt í senn bragðgóður, fljótlegur og afar hollur valkostur sem hentar vel sem hversdagsmatur eða ljúffengur veisluréttur við öll tilefni.“