Fara í efni
Mannlíf

Vatnahjallavegurinn og skáli FFA við Laugafell

Fyrsti alvöru skáli Ferðafélags Akureyrar, Laugafell, var reistur árið 1948. Félagar í FFA höfðu líklega unnið öll sumur í áratug í sjálfboðavinnu við að gera akfæran Vatnahjallaveginn upp úr Eyjafirði og í Laugafell. Nýttist vegurinn til að flytja efni í húsið á staðinn og til ferða þangað allra fyrstu árin eftir að Laugafellsskálinn var reistur, en umræddur vegur var hins vegar fljótlega aflagður og ófær.

Þetta er meðal þess sem Hjalti Jóhannesson rifjar upp í fróðlegum, skemmtilegum og mjög ríkulega myndskreyttum pistli í dag. Í tilefni 90 ára afmælis FFA í næsta mánuði hefur akureyri.net birt pistil frá Hjalta annan hvern laugardag upp á síðkastið.

Hluti pistils Hjalta í dag er áhugaverð grein eftir Þorstein Þorsteinsson, sem var lengi framkvæmdastjóri Ferðafélags Akureyrar og mikill frumkvöðull á sviði ferðamála. Greinin, sem birtist í Ferðum, tímariti FFA árið 1950 fjallar um vegamál og nýtingu hálendisvega fyrir ferðamennsku og aðkomu FFA að þeim málum.

Pistill dagsins: Haldið á brattann