Útrýmum mennskunni, maskínan skal sigra!
Stefán Þór Sæmundsson er enn á spjalli með Aðalsteini Öfgar, ellefta laugardaginn í röð, og nú er sá síðarnefndi í talsverðum ham sem kemur raunar ekki á óvart.
Upphaf pistils Stefáns Þórs í dag er svohljóðandi:
„Finnst þér ekki forkostulegt hvernig við höfum selt sál okkar, menningu og allt sem okkur er kærast, börnin og fjöregg þjóðar í hendur ótilgreindra snillinga sem ætla nú aldeilis að breyta heiminum til hins betra? Ég var búinn að vara við þessum gráðugu greppitrýnum en bláeygur almenningur sá bara hin gullnu tækifæri en ekki gereyðingu tilverunnar og dauðadjúpar sprungur mannsálarinnar. Allt fyrir tæknina. Útrýmum mennskunni, maskínan skal sigra!“
Ég heyrði að Aðalsteinn vinur minn Öfgar var í maníu og að auki nokkuð við skál og síminn minn var logandi heitur svo ég þurfti að halda honum langt frá eyranu. Alli hafði ekki treyst sér til að hitta mig í þó nokkurn tíma en hringdi þeim mun oftar.
- Pistill Stefáns Þórs: Þegar vinnan er farin í hundana