„Ungfrú Akureyri“ heillar ferðamenn
Peysan Ungfrú Akureyri hefur vakið mikla athygli hjá versluninni Garn í gangi á Akureyri, ekki síst meðal ferðamanna sem vilja gjarnan taka með sér heim minjagrip sem tengist Akureyri beint.
„Ungfrú Akureyri er samvinnuverkefni á milli okkar Írisar hér í Garni í gangi og Eddu Lilju Guðmundsdóttur,“ segir Sveina aðspurð út í peysuuppskrift sem fór í sölu í versluninni í fyrrasumar undir heitinu „Ungfrú Akureyri.“ Peysan stendur svo sannarlega undir nafni því mynstrið vísar í tákn úr heimabyggð. Hönnun peysunnar byggir á myndum sem þær Íris og Sveina sendu til Eddu Lilju, sem rak áður Garnbúð Eddu í Hafnarfirði. Edda Lilja, sem hannað hefur ótal prjónauppskriftir, kom myndunum í táknrænt mynstur fyrir Akureyri og nágrenni. Þannig má sjá Akureyrarkirkju í mynstrinu, hvalsporð og torfbæi. Torfbæirnir eru tilvísun í Laufás og menningararf svæðisins og þá tengja margir Akureyri við hvalaskoðun.

„Ungfrú Akureyri“ - Lopapeysa sem skartar einkennandi táknum fyrir Akureyri. Í mynstrinu, sem er eftir Eddu Lilju Guðmundsdóttur má sjá kirkju, hvalsporð og torfbæ. Peysan er úr léttlopa sem er handlitaður á Akureyri. Efst í berustykkinu má sjá Akureyrarkirkju, því næst kemur hvalsporður sem endar svo í gamaldags burstabæum.
Eigin litun og sérhönnun
Það er ekki bara mynstrið í peysunni sem vísar í heimabyggð því léttlopinn sem notaður er í peysuna er handlitaður á staðnum og því má segja að peysan sé eigin vara verslunarinnar. Sveina útskýrir að hefðbundið Ístex-garn (eins og plötulopi) sé selt víða, jafnvel í matvöruverslunum, sem geri samkeppni erfiða fyrir litlar garnverslanir. Lausnin hafi því verið að skapa sérstöðu með eigin litun og sérhönnun.
Peysa sem tengir við Akureyri
Eins og áður segir þá fór peysuuppskriftin í sölu hjá Garni í gangi í fyrrasumar og segir Sveina að útlendingarnir séu sérstaklega hrifnir af henni og ánægðir með að geta keypt peysuuppskrift sem tengist Akureyri beint og að garninu fylgi staðbundin saga. „Þeir eru ekki bara að kaupa uppskrift að peysu sem tengir við Akureyri, heldur líka garn sem við búum til,” segir Sveina. Þá segir hún að peysan sé alls ekki flókinn prjónaskapur svo hún henti vel sem verkefni fyrir marga. „Ég myndi alveg segja að þetta sé byrjendavæn peysa því þú ert aldrei með fleiri en tvo liti í einu,“ segir hún. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, sem gerir fólki kleift að máta á leiðinni og aðlaga sniðið. „Þegar þú ert að prjóna ofan frá og niður, þá er svo þægilegt að máta,“ segir Sveina og bætir við að það geti hjálpað fólki að fá peysuna til að passa betur.
- Viðtal við eigendur Garns í gangi, þær Írisi og Sveinu, birtist á akureyri.net í síðustu viku í tilefni fimm ára afmælis verslunarinnar. Viðtalið má finna hér:
- 5 ár af handavinnu, hlýju og samfélagi