Fara í efni
Mannlíf

Unga fólkið áhugasamt um samfélagið

Fjórir nýir fulltrúar tóku í gær sæti í ungmennaráði bæjarins og er ráðið þar með fullskipað fyrir komandi starfsár. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrar þar sem greint er frá því að mikill áhugi hafi verið á að taka þátt í störfum ráðsins; alls bárust 53 umsóknir, um tífalt fleiri en í fyrra. 

Meðal verkefna ungmennaráðs er undirbúa og sjá um árlegan fund bæjarstjórnar unga fólksins, sem einmitt er skipuð ungmennum úr nefndu ráði.

Við val á nýjum fulltrúum var tekið tillit til samþykktar um ungmennaráð, en þar segir meðal annars að gæta skuli að sem jöfnustu hlutfalli drengja og stúlkna sem og mismunandi skólastiga. Markmiðið er að fulltrúar ráðsins endurspegli hið margbreytilega samfélag sem Akureyri er, segir í fréttinni.

Þeim sem ekki komust í ungmennaráðið að þessu sinni er boðið að taka þátt í starfi málefnahópa. Þessir hópar eru nýjung og er ætlað að kalla fram mismunandi sjónarmið og gefa enn fleirum en áður tækifæri til að hafa áhrif á tiltekin málefni, allt eftir áhugasviði hvers og eins. Hóparnir fjalla meðal annars um fræðslumál, umhverfismál, jafnréttismál og margt fleira.

Ný í ungmennaráðinu eru Anton Bjarni Bjarkason, Klaudia Jablonska, Stormur Karlsson og  Þór Reykjalín Jóhannesson. Fyrir voru Gunnborg Petra Jóhannsdóttir, Helga Sóley Tulinius, Hildur Lilja Jónsdóttir, Ísabella Sól Ingvarsdóttir, Rakel Alda Steinsdóttir, Telma Ósk Þórhallsdóttir og Þura Björgvinsdóttir.