Blak: Tvö töp hjá KA gegn Vestra vestra
Karlalið KA í blaki sneri tómhent heim úr helgarferð sinni til Ísafjarðar en liðið mætti þar heimamönnum í Vestra tvívegis í deildarkeppninni. Báðir leikirnir voru jafnir og hörkuspennandi og réðust í oddahrinu, þar sem heimamenn höfðu betur í bæði skiptin.
Í fyrri leiknum á laugardaginn unnu liðin hrinurnar til skiptis. Vestri knúði fram sigur í fyrstu hrinu eftir upphækkun, 28:26, en KA svaraði með 25:18 sigri í þeirri næstu. Aftur komst Vestri yfir, með 25:21 sigri og KA jafnaði strax með 25:19 sigri í fjórðu hrinunni. Heimamenn voru hins vegar sterkari allan tímann í oddahrinunni, unnu hana 15:8 og leikinn þar með 3:2.
KA-menn komu ákveðnir til leiks í seinni viðureigninni á sunnudaginn. Með mikilli baráttu tókst þeim að vinna fyrstu tvær hrinurnar, sem voru hnífjafnar. Fyrri hrinan fór 25:23 og önnur endaði í upphækkun og lauk með 27:25 sigri KA. Vestri svaraði fyrir sig með 25:18 sigri í þriðju hrinu en í fjórðu hrinu virtist KA ætla að innbyrða sigurinn þegar staðan var orðin 21:16. Vestramenn tóku hins vegar lokakaflann 9:1 og jöfnuðu leikinn með 25:22 sigri í hrinunni. Og líkt og daginn áður voru þeir mun sterkari í oddahrinunni, unnu hana 15:8 og leikinn 3:2.
Íslandsmeistarar KA hafa því farið brösuglega af stað í deildinni og hafa aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum. Vestramenn eru hins vegar á toppi deildarinnar og hafa unnið alla sína fimm leiki. Næsti leikur KA er laugardaginn 7. nóvember þegar botnlið HK kemur í heimsókn.