Fara í efni
Mannlíf

Tónleikar Hermanna hugans og nýtt lag

Tónlistarmaðurinn Ari Baldursson stígur á svið ásamt hljómsveit sinni, Hermönnum hugans, á Græna hattinum í kvöld. Frumsamin tónlist Ara verður í fyrirrúmi á tónleikunum, en hann hefur verið afar iðinn við útgáfu á síðustu misserum, að því er segir í tilkynningu. Í dag kemur einmitt nýjasta lag hans, Sveitaball ’77, formlega út á öllum streymisveitum.

„Ari Baldursson var áberandi í ballbransanum á Akureyri á níunda áratugnum með hljómsveitum eins og París og Helenu fögru, og var síðar helmingur dúettsins Jóns forseta. Jón forseti lék nokkrum sinnum fyrir dansi á „Pollinum“ fyrir Hauk Tryggvason á sínum tíma, en Haukur rekur Græna hattinn svo þeir eru ekki ókunnugir,“ segir í tilkynningunni. „Ari er yfirleitt með svartan kúrekahatt þegar hann kemur fram og verður því ekta stemning þegar svarti hatturinn mætir loksins á þann Græna.“

25 ára útgáfuafmæli 

Ari segir lagið Sveitaball ’77 fanga stemninguna á böllum áttunda áratugarins, en útgáfan sé liður í stærra ferli þar sem hann stefni á útgáfu nýs geisladisks á næsta ári. „Hann á að baki dýrmæta reynslu sem lagahöfundur; hann gaf út plötuna Helst af öllu árið 2006 þar sem öll tíu lögin voru eftir hann sjálfan, og árið 2024 fylgdi hann því eftir með plötunni Gull og grænir skógar,“ segir í áðurnefndri tilkynningu.

Á efnisskránni í kvöld verður úrval laga af ferlinum, þar á meðal af plötu dúettsins Jóns forseta, en hún á einmitt 25 ára útgáfuafmæli á þessu ári. „Það er því vel við hæfi að fagna þeim tímamótum á Græna hattinum með þéttri hljómsveit.“

„Meginmarkmiðið er að flytja eigin lög í lifandi umhverfi og leyfa þeim að njóta sín með fólkinu. Nýja lagið er þegar farið að vekja athygli en ég gerði það aðgengilegt á Facebook-síðu minni nýverið til að hita upp fyrir tónleikana. Að það komi svo formlega á streymisveiturnar á tónleikadaginn eykur bara á eftirvæntinguna,“ segir Ari.

Hljómsveitina Hermenn hugans skipa Ari Baldursson, söngvari og gítarleikari, Hallgrímur Jónas Ómarsson, sem einnig leikur á gítar, Ingólfur Jóhannsson hljómborðsleikari, bassaleikarinn Gísli Örn Guðmundsson, Bjarni Arason trommari og Árni F. Sigurðsson hljóðmaður.