Töfrandi hátíð en dökk saga liggur að baki
„Fjórða fimmtudag í nóvember ár hvert safnast fjölskyldur í Bandaríkjunum saman við veisluborð og halda þakkargjörð. Hátíð sem á meðal annars rætur í þeim sið að fagna uppskerulokum og þakka fyrir gjafir jarðar. Flest okkar tengja þessa hátíð við fylltan kalkún, kartöflumús, trönuberjasósu og graskersböku. “
Þetta segir Þráinn Lárusson í upphafi matarpistils dagsins sem akureyri.net birtir í röðinni MATARÞRÁ-INN eins og aðra laugardaga. Hann heldur áfram:
„Fólk ferðast langar leiðir til að fagna með ættingjum og vinum, horfir á skrúðgöngur og amerískan fótbolta og gefur sér stund til að þakka fyrir það góða í lífinu. Fyrir mörgum er þetta fyrst og fremst dagur gleði og samveru en að baki þessarar töfrandi hátíðar liggur líka dökk saga ofbeldis og þrældóms. Sú saga verður ekki sögð til fulls með mynd af brosandi landnemum og frumbyggjum við sameiginlegt borð.“
Þráinn fer vítt og breitt í afar fróðlegum og skemmtilegum pistli, eins og hans er von og vísa. Hann rifjar upp að sá siður að þakka fyrir uppskeru varð ekki til í Bandaríkjunum því í Evrópu höfðu uppskeruhátíðir lengi verið hluti af árstíðabundnu samfélagslífi. „Landnemarnir fluttu þessar hefðir með sér yfir Atlantshafið og héldu þeim við í Vesturheimi. Frumbyggjar Norður-Ameríku höfðu líka sínar eigin hefðir um þakklæti, uppskeru og tengsl mannsins við náttúruna.“
Pistill Þráins: Þakklæti í skugga dökkrar fortíðar