Fara í efni
Mannlíf

Tilboð í byggingarrétt frá 309 til 902 milljóna

Lóðirnar þrjár á Tjaldsvæðisreitnum sem boðnar voru út. Mynd: akureyri.is.

Fimm tilboð bárust byggingarrétt þriggja lóða á Tjaldsvæðisreitnum svokallaða, það lægsta um 309 milljónir króna frá SS Byggi ehf. á Akureyri en hæsta tilboðið var 902 milljónir, frá JSP320 ehf. í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir að ellefu fjölbýlishús verði reist á þessum lóðum. Í útboðsskilmálum Akureyrarbæjar var tilgreint lágmarksverð upp á ríflega 295 milljónir króna, auk gatnagerðargjalda og annarra lögbundinna gjalda.

Tilboðin sem bárust og tilboðsfjárhæðir:

JSP320 ehf. 902.000.000 kr.
Klettás ehf. 657.000.000 kr.
GG verk ehf. 583.238.000 kr.
Landsbyggð þróun ehf. 351.000.001 kr.
SS Byggir ehf. 308.844.402 kr.