Mannlíf
Þrjár gagnlegar og vel unnar matreiðslubækur
31.03.2026 kl. 06:00
AF BÓKUM – 72
Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
Í dag skrifar Halldóra Stefanía Birgisdóttir_ _ _
Air fryer bækurnar eftir Erlu Steinunni Árnardóttur
Air fryer hefur á örfáum árum orðið eitt vinsælasta eldhústæki landans og fyrir marga hefur hann breytt bæði daglegri matargerð og bakstri. Í bókunum Eldað í Air Fryer, Bakað í Air Fryer og Matur og meðlæti í Air Fryer fáum við skýrar leiðbeiningar, fjölbreyttar uppskriftir og góða framsetningu sem hentar jafnt byrjendum sem reynslumeiri heimiliskokkum.
Það sem stendur strax upp úr er hversu vel höfundur leggur upp með að kenna lesandanum að skilja tækið sjálft. Í bókunum er farið yfir hvernig potturinn virkar, hvaða olíur henta best, hvaða fylgihlutir geta auðveldað eldun og hvernig hægt er að ná jafnvægi milli tíma og hitastigs. Þessar grunnupplýsingar gera það að verkum að lesandinn lærir ekki aðeins að fylgja uppskrift heldur einnig að aðlaga hana að eigin þörfum.
Uppskriftirnar eru fjölbreyttar og spanna allt frá einföldum hversdagsréttum yfir í bakstur og meðlæti. Sérstaklega er gaman að sjá hversu vel air fryer potturinn nýtist í bakstri, þar sem hægt er að útbúa muffins, kökur og jafnvel brauð án þess að hita upp hefðbundinn ofn. Þetta sparar bæði tíma og orku og gerir bakstur aðgengilegri í annasömum hversdeginum.
Framsetning bókanna er einföld og skýr. Textinn er læsilegur og leiðbeiningarnar hnitmiðaðar, sem gerir auðvelt að grípa bókina með sér inn í eldhús án þess að þurfa að lesa langar útskýringar. Myndirnar eru girnilegar og hjálpa lesandanum að sjá fyrir sér lokaútkomuna, sem eykur enn frekar matarlystina og löngunina til að prófa nýjar uppskriftir.
Annar styrkleiki bókanna er að þær henta breiðum hópi. Hvort sem verið er að elda fyrir einn, par eða fjölskyldu má finna hugmyndir sem nýtast í daglegu lífi. Margar uppskriftir eru einfaldar og krefjast ekki flókins hráefnis, sem gerir þær raunhæfar fyrir íslensk heimili.
Í heildina er hér um að ræða gagnlegar og vel unnar matreiðslubækur sem hjálpa fólki að fá sem mest út úr air fryer pottinum sínum. Þær henta sérstaklega vel þeim sem vilja elda fljótlegan, einfaldan og fjölbreyttan mat án mikillar fyrirhafnar og uppgötva nýjar leiðir til að nýta þetta vinsæla eldhústæki.