Fara í efni
Mannlíf

Þorsteinn Már: „Þetta vilja menn sjaldan ræða“

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja. Mynd: Samherji.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja á Akureyri, er í ítarlegu viðtali í páskaþætti hlaðvarpsins Þjóðmála.

Í viðtalinu fer Þorsteinn Már um víðan völl, fjallar „um sögu og uppbyggingu félagsins, hvernig það kom til að þrír ungir frændur ákváðu að reyna fyrir sér í sjávarútvegi, um framtíð greinarinnar og samkeppnina við erlenda risa, hvaða möguleikar kunna að felast í fiskeldi, hvort til greina komi að skrá Samherja í Kauphöllina, hvernig umræða um fiskveiðistjórnunarkerfið hefur þróast, 12 ára baráttu við Seðlabankann og aðra anga kerfisins, ummælin um Gugguna sem átti að vera gul og margt fleira. Stútfullur páskaþáttur hér á ferð,“ eins og segir í kynningu á þættinum.

Að ofan eru nefnd ummælin um Gugguna; þau fleygu orð Þorsteins Más þegar Samherji keypti skipið Guðbjörgu ÍS af útgerðarfélaginu Hrönn á Ísafirði, sem gjarnan eru rifjuð upp í umræðum um fiskveiðistjórnunarkerfið, að skipið yrði áfram gult og gert út frá Ísafirði.

  • Þorsteinn Már segir Hrönn hafa staðið illa fjárhagslega þegar þegar Samherji keypti skipið. Rekst­ur­inn hafi ekki staðið und­ir vænt­ingum; fyrri eigendur hafi tekið áhættu en setið uppi með erfiðan rekstur og greitt háa vexti af fjár­fest­ing­unni. 
  • „Ég byrjaði í sam­starfi við þessa ágætu menn, það endaði með því að þeir gerðust hlut­haf­ar í Sam­herja,“ segir Þor­steinn Már.
  • „Ég í ein­hverju bjart­sýniskasti segi þessa frægu setn­ingu um skipið, að Guðbjörg­in yrði gul áfram. En sú bjart­sýni byggði ekki á rök­um.“
  • Þorsteinn Már rifjar síðan upp að Ásgeir Guðbjarts­son, útgerðarmaður og skip­stjóri á Guðbjörgu, hafi síðar selt hlut sinn í Sam­herja og fjármagnið verið notað til að hefja aft­ur út­gerð á Vest­fjörðum. Þá varð til fyr­ir­tækið Jakob Val­geir, sem nú er öfl­ugt út­gerðarfé­lag í Bol­ung­ar­vík.
  • „Þeir fjár­mun­ir sem þeir fengu út úr Sam­herja voru nýtt­ir til að kaupa veiðiheim­ild­ir sem voru miklu meiri en á Guðbjörg­inni á sín­um tíma. Þetta vilja menn sjald­an ræða,“ seg­ir Þor­steinn Már.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn