Fara í efni
Mannlíf

Þorsteinn Jakob er ungskáld ársins 2021

Verðlaunahafarnir, fremstur er sigurvegarinn, Þorsteinn Jakob Klemenzson en fyrir aftan Halldór Birgir Eydal og Þorbjörg Þóroddsdóttir. Mynd af vef Akureyrarbæjar/Ragnar Hólm

Þorsteinn Jakob Klemenzson varð hlutskarpastur í ritlistakekeppni Ungskálda að þessu sinni. Hann hlaut fyrstu verðlaun fyrir ljóðabálkinn Vá hvað ég hata þriðjudaga! Úrslitin voru kynnt á Amtsbókasafninu síðdegis.

Ungskáld er verkefni á Akureyri sem hefur verið við lýði í nokkur ár og gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá fólki á aldrinum 16 til 25 ára á Norðurlandi eystra.

Í öðru sæti í keppninni að þessu sinni var Halldór Birgir Eydal með Ég vil ekki kaupa ný jakkaföt og Þorbjörg Þóroddsdóttir hreppti þriðja sætið fyrir verk sitt, Mandarínur. Alls bárust 52 verk frá 29 þátttakendum í keppnina að þessu sinni.

Fyrr í haust var haldin sérstök ritlistasmiðja í Menntaskólanum á Akureyri í tengslum við Ungskáld 2021 en ekki var unnt að halda slíka smiðju í fyrra vegna Covid-19. Leiðbeinendur voru Fríða Ísberg og Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA. Þátttaka í smiðjunni var mjög góð en rétt er að taka fram að það var á engan hátt skylda að sitja smiðjuna til þess að taka þátt í ritlistakeppninni, að því er segir á vef Akureyrarbæjar.

Í dómnefnd sátu að þessu sinni Finnur Friðriksson, dósent við HA, Hólmfríður Andersdóttir, fyrrverandi bókavörður á Amtsbókasafninu, og Þórður Sævar Jónsson, ljóðskáld og þýðandi, sem jafnframt var formaður dómnefndar.

Að verkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Akureyrarstofa, Ungmennahúsið í Rósenborg, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Menntaskólinn á Akureyri. Ungskáldaverkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.