Fara í efni
Mannlíf

Þór/KA hefur leik í Bestu deildinni í dag

Amalía Árnadóttir komin í færi í leik Þórs/KA og FH í Lengjubikarnum í mars. Mynd: Ármann Hinrik.

Keppni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu hófst með tveimur leikjum í gærkvöld, en Þór/KA spilar sinn fyrsta keppnisleik á glænýjum gervigrasvelli á Þórssvæðinu í dag. Eflaust verða bæði leikmenn og áhorfendur fegnir að komast aftur út undir bert loft til að spila leikina í Bestu deildinni eftir að hafa notað Bogann í allt fyrrasumar.

Þór/KA tekur á móti FH í fyrstu umferðinni, en FH endaði mótið í 2. sæti í fyrra og er því annað af liðum Bestu deildar kvenna sem tekur þátt í Evrópukeppni í sumar.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    Þórsvöllur, Ásinn, kl. 16
    Þór/KA - FH

Þór/KA og FH mættust í Boganum fyrir stuttu, í lokaleik liðanna í riðlakeppni Lengjubikarsins. Þór/KA hafði þar sigur, 4-2. FH vann báðar viðureignir liðanna í deildinni í fyrrasumar, 3-0 í Boganum og 5-3 í Kaplakrika, auk þess að slá Þór/KA út úr bikarkeppninni með 3-1 sigri í Boganum.