Fara í efni
Mannlíf

Þór langt frá sínu bestu og oddaleikur í vændum

Páll Nóel Hjálmarsson, í felum bak við boltann, ver hér skot frá Darius Banks í leik Þórs og Skallagríms á Akureyri á dögunum. Jason Gigliotti fyrir aftan Banks. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Karlalið Þórs í körfubolta náði sér engan vegin á strik í gærkvöldi þegar það sótti Skallagrím heim í Borgarnesi í úrslitakeppni 1. deildarinnar. Þetta var fjórða viðureign, heimamenn unnu 99:73 og staðan er nú 2:2 í einvíginu.

Liðin mætast í fimmta og síðasta skipti í Íþróttahöllinni á Akureyri næsta laugardagskvöld. Sigurvegarinn í þeim leik heldur áfram keppni, tapliðið fer í sumarfrí.

  • Skorið eftir leikhlutum: 19:17 – 24:21 – 43:38 – 31:15 – 25:20 – 99:73

Fyrri hálfleikurinn var jafn en Skallagrímur með örlítið forskot. Í þriðja leikhluta má svo segja að úrslitin hafi ráðist þegar Borgnesingar hreinlega stungu Þórsara af, gerðu 31 stig en allt gekk á afturfótunum hjá Akureyringum sem gerði aðeins 15 stig.

Þess má geta að Nicolas Elame, annar Bandaríkjamaðurinn í liði Skallagríms, fékk tvær tæknivillur undir lok fyrri hálfleiks þegar staðan var 40:32 og var því vísað af velli fyrir fullt og allt. Það breytti engu, nema þá til hins betra fyrir heimamenn sem fóru á kostum í þriðja leikhluta sem fyrr segir.

Helsta tölfræði Þórsara, stig - fráköst - stoðsendingar

  • Jason Gigliotti 18 - 5 - 3
  • Reynir Róbertsson 14 - 8 - 3
  • Harrison Butler 14 - 6  - 2
  • Smári Jónsson 11 - 4 - 5
  • Baldur Örn Jóhannesson 5 - 7 - 3
  • Páll Nóel Hjálmarsson 5 - 1 - 0
  • Hákon Arnarsson 2 - 1 - 1
  • Róbert Orri Heiðmarsson 2 - 1 - 0
  • Sigurjón Trausti Guðgeirsson Hjarðar 2 - 1 - 0
  • Andri Már Jóhannesson 0 - 1 - 1
  • Arngrímur Alfreðsson 0 - 1 - 0

Smellið hér til að sjá ítarlega tölfræði

Sigurliðið á laugardagskvöldið mætir ÍR í undanúrslitum keppninnar um sæti í efstu deild næsta vetur. Fyrsti leikur í því einvígi hefst á heimavelli ÍR á miðvikudag í næstu viku. Í undanúrslitum mætast einnig Fjölnir og Sindri.