Fara í efni
Mannlíf

Taka upp þráðinn í æsilegri botnbaráttu

Einar Freyr Halldórsson, miðjumaður í Þór, og varnarmaðurinn Hans Viktor Guðmundsson, fyrirliði KA, sem stíga hér dans í síðasta Akureyrarslag sumarsins, verða í eldlínunni í dag; Einar Freyr gegn ÍBV á heimavelli en Hans Viktor gegn Stjörnunni í Garðabæ. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Eftir nokkurt hlé – alltof langt segja sumir – rúllar karlafótboltinn aftur af stað í Bestu deildinni, þriggja vikna lokahnykkur fram undan. Akureyrarliðin í æsilegri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni, bæði að spila í dag, Þór heima og KA úti. Íshokkíið er að komast á skrið og SA-konur sækja helstu keppinautana heim í Laugardalinn.

  • Senn dregur til tíðinda í Bestu deild karla í knattspyrnu. Akureyrarliðin eru í harðri baráttu við að forðast fall úr deildinni og nú eru níu stig eftir í pottinum. KA sækir Stjörnuna heim í 25. umferðinni, en Þór tekur á móti ÍBV. Valur og Stjarnan hafa nú þegar tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni, en í fjórum neðstu sætunum eru FH með 27 stig, KA með 23, Þór með 21 og ÍBV með 19.
    • Leikir sem fjögur neðstu liðin eiga eftir:
      FH: Valur (ú), ÍBV (ú), Þór (h)
      KA: Stjarnan (ú), Valur (ú), ÍBV (h)
      Þór: ÍBV (h), Stjarnan (h), FH (ú)
      ÍBV: Þór (ú), FH (h), KA (ú)
  • Kvennalið SA í íshokkí hefur byrjað tímabilið af krafti og unnið bæði Reykjavíkurliðin einu sinni. Í dag er komið að heimsókn í Laugardalinn þar sem búast má við hörkuleik gegn Íslandsmeisturum SR.

Baráttan við að forðast fall úr Bestu deild karla í knattspyrnu er að ná hámarki. 

  • Fótbolti
    Besta deild karla, 25. umferð, neðri hluti
    Samsungvöllurinn í Garðabæ kl. 14
    Stjarnan - KA

Heimaleikur Þórs gegn ÍBV í baráttu neðstu liða Bestu deildar karla í knattspyrnu er á dagskrá í dag. Svo gæti farið að úrslit leikja í dagsins þýði að ÍBV falli úr deildinni.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, 25. umferð, neðri hluti
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras á Ásnum) kl. 14
    Þór - ÍBV

Hörkuslagur í boði í Skautahöllinni í Laugardalnum þegar SA sækir lið Íslandsmeistaranna heim.

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
    SR - SA

  • Þór átti að leika við ÍBV-2 í Eyjum í dag í 16 liða úrslitum bikarkepninnar í handbolta, Powerade-bikarkeppninni, en leiknum hefur verið seinkað um viku. Hann fer fram laugardaginn 17. október kl. 16:30.