Taka í gegn 270 stóla úr safnaðarheimilinu
Bryngeir Kristinsson er í sóknarnefnd Akureyrarkirkju, og hann svaraði kallinu þegar fyrir lá að nú yrði að taka stólana í safnaðarheimilinu í gegn. Eitt sinn fagurrauðir, en í dag fölbleikir að lit í besta lagi og víða göt á áklæði og viðurinn farinn að láta á sjá. Það er ekki lítið verkefni að taka þá í gegn, en í heild eru þetta 270 stólar. Blaðamaður akureyri.net heimsótti Bryngeir og sjálfboðaliðana sem aðstoða hann með stólana í Rósenborg.
Heldurðu ekki að það verði munur að setjast í þessa stóla næst þegar ég kem í safnaðarheimilið!
Það var á fundi með sóknarnefndinni sem séra Hildur Eir Bolladóttir vakti máls á því að stólarnir þyrftu aðhlynningu, og Bryngeir tók að sér að stýra verkefninu. „Við auglýstum eftir sjálfboðaliðum, en það hefur því miður ekki borið mikinn árangur. Ég var svolítið mikið einn til að byrja með, en þessi þrjú sem eru hérna núna hafa komið síðustu vikur sem er mikið happ,“ segir Bryngeir og ítrekar að þau taki fegin við fleiri höndum til verksins.
„Nú eru 123 stólar tilbúnir í safnaðarheimilinu, og hér inni standa 86 stólar sem eru tilbúnir og bíða þess að fá bakið sent úr bólstrun,“ segir Bryngeir, en Guðmundur Hafsteinsson sér um að bólstra bökin en sjálfboðaliðarnir bólstra sjálf sessuna.

Myndarlegir staflar af tilbúnum stólum bíða eftir bökum, sem eru í bólstrun hjá Guðmundi Hafsteinssyni. Mynd: RH

Upplyftingin leynir sér ekki á stólunum sem eru tilbúnir. Mynd: RH
Tímafrek vinna
„Það eru 45 stólar sem eru aðeins öðruvísi, en þeir eru með haldi líka. Ég er aðeins að fresta því að taka þá í gegn, það verður aðeins flóknara,“ segir Bryngeir. „Við tökum í rauninni hvern stól í sundur, tökum bökin og seturnar af. Svo pússum við upp grindurnar, en það er mikið af skemmdum í þeim og svo lökkum við yfir þær með möttu lakki. Síðast setjum við stólinn aftur saman, þegar sætið og bakið er klætt.“
Gaman að taka til hendinni
Karl Franklín Magnússon og Heiðdís Björk Karlsdóttir eru sjálfboðaliðar á plani í dag, en Karl situr við að taka gamalt áklæði af. Aðspurður segist hann aðeins vera áhugabólstrari, en hann starfaði sem pípulagningarmeistari áður en hann fór á eftirlaun. Handlagnin leynir sér ekki! Heiðdís mundar sandpappírinn af mikilli list og segir blaðamanni að hún sé leikskólakennari og starfaði sem slíkur áður en hún fór á eftirlaun.
„Þetta er mjög skemmtilegt! Og heldurðu ekki að það verði munur að setjast í þessa stóla næst þegar ég kem í safnaðarheimilið,“ segir Heiðdís glöð í bragði. Þau eru svo að hendast út, til þess að fara á pokakasts-æfingu í íþróttahúsinu, en stólarnir bíða þolinmóðir þar til þau snúa aftur.

Heiðdís Björk Karlsdóttir pússar grind af stól. Mynd: RH

Karl Franklín Magnússon er laginn við að losa heftuð áklæðin. Mynd: RH
Ánægja með útkomuna
Sumir sjálfboðaliðanna eru ekki að mæta á staðinn, heldur sækja stólbök og laga. „Nokkrar konur eru að vinna með að sauma í göt og laga heima við. Það er til dæmis ein eldri kona frá Úkraínu sem kemur mjög reglulega og sækir bök. Við setjum bara nýja efnið yfir það gamla, það hefði verið alltof mikil vinna að taka það allt af og útvega nýja svampa á stólana.“
„Við erum mjög ánægð með það, hvernig stólarnir eru að koma út, og stefnan er að ljúka verkinu helst ekki mikið seinna en um páskana,“ segir Bryngeir að lokum.
- Áhugasamir um að leggja þessu verkefni lið geta haft samband við Bryngeir beint, í síma 6901759.

Það er allt annað að sjá safnaðarheimilið eftir vandaða vinnu sjálfboðaliðanna. Mynd: RH