Fara í efni
Mannlíf

Systur með túristabúð í barnavagni í miðbænum

Systurnar og verslunarkonurnar Margrét Sóley og Ragnheiður Inga Matthíasdætur. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

„Ég er í vaktafríi í vinnunni og við systur ákváðum að henda í svona litla túristabúð á vagni,“ segir Ragnheiður Inga, Ragga, verslunarkona í miðbænum. Hún og systir hennar Margrét Sóley, Magga, vöktu athygli blaðamanns þar sem þær rúntuðu í kring um Ráðhústorgið með gamlan barnavagn. Það kom fljótt í ljós að þessar ungu konur voru ekki með barn í vagninum, heldur litla verslun með minjagripi og fleira spennandi. 

Fánar, notaðir íslenskir munir og kruðerí

„Þegar ég var lítil þá byrjaði ég með svona fánabisness,“ segir Ragga, þegar blaðamaður vill forvitnast um vöruúrvalið. „Ég átti ennþá perlaða fána síðan þá. Svo erum við líka með svona gamalt íslenskt dót sem við köllum 'Second hand souvenirs'. Svo er Magga að teikna myndir af fuglum og hjörtunum í umferðarljósunum og við seljum þær, auk þess að vera með nýbakaða hjónabandssælu og brownies.“ 

Perluðu fánarnir hennar Röggu. Þetta er flottur varningur fyrir Íslendinga sem vilja undirbúa sig fyrir Þjóðhátíðardaginn líka. Mynd: RH

Magga gerði þessa mynd af akureyrsku umferðarljósunum, sem er til sölu hjá þeim stöllum. Mynd: RH

Ferðamönnunum finnst áhugavert að fá svona 'Happy marriage cake', segir Ragga. Mynd: RH

Hugmyndarík fjölskylda

Stúlkurnar eiga ekki langt að sækja hugmyndaauðgina, en mamma þeirra er kollegi blaðamanns á Akureyri.net, Snæfríður Ingadóttir. „Hugmyndin að þessum vagni er nú komin frá mömmu,“ segir Ragga og brosir. „Hún er svona túrista-meistari! Ég er svo að vinna á veitingastað og fæ oft spurningu frá ferðamönnum, hvar sé best að kaupa minjagripi og ég bendi þeim á að fara niður í bæ.“ 

„Við völdum daginn í dag, af því að það eru tvö skip og gott veður,“ segir Ragga að lokum. „Ef enginn kemur, þá er það bara í góðu lagi og við borðum bara hjónabandssæluna sjálfar.“

 

Blaðamaður verður að drífa þetta viðtal af, þar sem það eru áhugasamir viðskiptavinir mættir. Mynd: RH