Mannlíf
Sveinbjörn, Ágúst og Valdimar V. Snævarr
03.08.2026 kl. 06:00
Skemmtilegar upplýsingar hafa borist um gömlu myndina sem akureyri.net birti fyrir hálfri annarri viku, föstudaginn 24. júlí.
Gömul ljósmynd frá Minjasafninu á Akureyri hefur birst á akureyri.net á hverjum föstudegi síðan miðillinn var endurvakinn í nóvember árið 2020. Það er gert bæði til að gleðja lesendur, því vitað mál er að margir hafa afskaplega gaman af gömlum myndum, og í því skyni að aðstoða Minjasafnið við að safna upplýsingum um hvar myndir eru teknar, um nöfn fólks á myndum og þar fram eftir götunum.
Lesendur voru fljótir að átta sig á því að umrædd mynd, sem birtist 24. júlí, er af Vallakirkju í Svarfaðardal. Þær upplýsingar voru birtar á föstudaginn var en jafnframt tekið fram að enn væri ekki vitað um nöfn mannanna fjögurra sem standa við kirkjuna. Lesendur voru því hvattir til að skoða myndina betur og athuga hvort þeir könnuðust við einhvern fjórmenninganna eða jafnvel alla. Strax daginn eftir barst ánægjulegur póstur frá Vigni Sveinssyni sem full ástæða er til að birta í heild og er hér gert – með góðfúslegu leyfi Vignis.
Ástæða er til að þakka Vigni fyrir sendinguna, svo og öllum þeim sem hafa sent upplýsingar undanfarin ár.
Vignir skrifar:
Fyrir viku var birt mynd af Vallakirkju sem er auðþekkjanleg. Þar fermdist ég fyrir rúmum 60 árum.
Ég tel mig vita með nokkurri vissu um nöfn þriggja af fjórum sem standa á tröppum hennar. Lengst til vinstri mun vera Sveinbjörn Jónsson (Þórðarsonar frá Hnjúki í Skíðadal), lengst af kenndur við Ofnasmiðjuna. Við hlið hans álít ég að sé Ágúst Jónsson (húsasmíðameistari og steinasafnari á Akureyri) yngsti bróðir hans, og sá þriðji f.v. er án efa Valdimar V. Snævarr, skólastjóri og sálmaskáld.
Ég man eftir þeim bræðrunum í heimsókn að Þverá í Skíðadal, bernskuheimili mínu. Þar voru þeir að heilsa upp á frændfólk sitt því móðir mín, Þórdís Rögnvaldsdóttir og þeir voru bræðrabörn. Þetta mun hafa verið um 1960. Ég var þá um 10 ára aldurinn og mér eru þessir hávöxnu, grönnu og fínt klæddu frændur okkar minnisstæðir. Ekki er ólíklegt að myndin tekin í þeirri ferð en það gæti líka hafa verið fyrr, a.m.k. veit ég að Sveinbjörn kom líka í dalinn 1950 því til eru myndir sem hann tók í þeirri ferð. Held þó að Ágúst hafi ekki verið með honum þá.
Valdimar lést 1961, hafði þá síðustu tæplega tvo áratugina átt heimili sitt á Völlum hjá syni sínum sr. Stefáni og konu hans Jónu sem Sveinbjörn og Ágúst voru einnig skyldir (að öðrum og þriðja).
Um nafn mannsins lengst til hægri veit ég ekki.
Bestu kveðjur,
Vignir Sveinsson