Fara í efni
Mannlíf

Súlusveinar mæta á svalirnir í dag

Jólasveinar hófu fyrir margt löngu að koma fram á svölum stórhýsis KEA við Hafnarstræti rétt fyrir jól, og þar verða Súlusveinar á ferðinni í dag – á svölum verslunar Pennans, gegnt Bláu könnunni. Kjötkrókur tjáði Akureyri.net að þar verði þeir bræður klukkan 15.30 og vonast hann til þess að sjá sem flest börn á staðnum.

Smellið hér til að heyra lag af diski sem Súlusveinar gáfu út fyrir nokkrum árum.