„Stóra veislusýningin“ á Múlabergi um helgina
Múlaberg Bistro & Bar stendur fyrir veislusýningu næstkomandi laugardag, 7. febrúar kl. 12:00. „Boðið verður uppá litríka og spennandi sýningu þar sem fjölmörg fyrirtæki kynna og selja vörur og þjónustu fyrir alla þá sem eru að plana veislu eða hátíðlegar stundir,“ segir í tilkynningu frá Múlabergi. „Á sýningunni verða til staðar vörur á borð við förðunarvörur og förðunarráðgjöf, hárvörur og hárgreiðslur, fatnaður, auk fallegra skreytinga og borðskreytinga.“
Veitingaaðilar munu bjóða upp á smakk meðan birgðir endast, svo gestir geta séð hvað er í boði og fengið ráðgjöf.
Sýningin var haldin í fyrsta skipti í fyrra þar sem þemað var fermingar og hátt í 20 fyrirtæki á svæðinu tóku þátt og fór aðsóknin fram úr öllum væntingum, að sögn aðstandenda. „Í ár kom því ekkert annað til greina en að stækka viðburðinn og nú tekur viðburðurinn yfir alla veislusali Múlabergs, auk veitingastaðarins og systurstað Múlabergs, Terían Brasserie á jarðhæð.“
Nýjung þetta árið er að Múlaberg Bistro og Bar og Terían Brasseri bjóða gestum að panta sér einstaklingsbundna ráðgjöf með viðburðarstjóra, óháð því hvort þjónusta eða veitingar verði keyptar. „Ráðgjöfin er frábært tækifæri til að ræða hugmyndir, fá faglega innsýn í skipulag, matarval, skráningu og aðra þætti sem skipta máli. Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að panta tíma í ráðgjöfina fyrirfram,“ segir í tilkynningunni.