SSNE andmælir hækkun virðisauka á baðlón
Haustþing SSNE lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón og sambærilega baðstarfsemi. Ályktunin var lögð fram af fulltrúum Norðurþings á haustþingi SSNE sem fram fór í menningarhúsinu Bergi á Dalvík í síðust viku.
Í ályktuninni er bent á að skattahækkunin geti haft áhrif á samkeppnishæfni, fjárfestingar og atvinnusköpun í ferðaþjónustu, einkum á landsbyggðinni. Á Norðurlandi eystra eru meðal annars Skógarböðin við Akureyri, Jarðböðin við Mývatn og Sjóböðin á Húsavík nefnd sem dæmi um fyrirtæki sem hafi stuðlað að uppbyggingu heilsársferðaþjónustu og skapað störf á svæðinu.
Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, sagði á þinginu að sveitarfélagið mætti illa við því að fleiri störf tapist eða íbúum fækki. Norðurþing hafi orðið fyrir atvinnumissi á síðasta ári og því skipti miklu máli að styðja við fjölbreytt atvinnulíf og heilsársferðaþjónustu.
Í ályktuninni er jafnframt bent á að ólíkar aðstæður séu hjá baðstöðunum á svæðinu. Sjóböðin séu í reglubundnum rekstri, Jarðböðin hafi nýlega verið opnuð að nýju eftir breytingar og stækkun og Skógarböðin séu enn í uppbyggingarferli. Þá séu einnig uppi áform um frekari uppbyggingu baðstaða á svæðinu.
„SSNE skorar því á ríkisstjórn og Alþingi að endurskoða fyrirhugaðar breytingar og tryggja að skattastefna ríkisins styðji við áframhaldandi uppbyggingu verðmætra starfa og sjálfbærrar ferðaþjónustu um land allt, þar á meðal á Norðurlandi eystra,“ segir í ályktuninni.