Sósugerð – hráefni, bragð og tæknin að baki
Þegar rætt er um sósur snýst umræðan oftast um hráefni og bragð, en síður um það sem skiptir raunverulegu máli: tæknina sem liggur að baki sósugerð.
Þetta segir Þráinn Lárusson í nýjum matarpistli sem akureyri.net birtir í dag. Hann heldur áfram:
Fá dæmi sýna þetta skýrar en svokallaðar emúlsjónsósur eins og Hollandaise og Béarnaise. Þessar sósur eru meðal þekktustu birtingarmynda þeirrar aðferðar við sósugerð þar sem eggjarauður og smjör eru bundin saman í stöðuga sósu með aðstoð sýru og nákvæmrar hitastýringar.
Þráinn kemur að vanda víða við í skemmtilegum pistli og raunar er ekki annað hægt en hvetja alla til að lesa pistla hans í röðinni MATARÞRÁ-INN sem akureyri.net hefur birt á árinu; þar kennir sannarlega margra grasa og fjölbreyttur fróðleikurinn kemur án efa mörgum á óvart.
- Pistill dagsins: Sauce émulsionnée – Hollandaise og Bearnaise