Mannlíf
Sólarkaffi Vestfirðinga á Akureyri í kvöld
13.02.2026 kl. 06:00
Fossinn Dynjandi í botni Arnarfjarðar, innan landamerkja Ísafjarðabæjar.
Nokkrir Vestfirðingar búsettir á Akureyri ákváðu að endurvekja Sólarkaffi, sem lengi var haldið árlega í bænum en hefur legið niðri í 28 ár. „Nú er tækifæri að pússa dansskóna og mæta í þeim í sal Birtu á Bjargi í Bugðusíðu,“ segir í tilkynningu um viðburðinn sem verður í kvöld, föstudagskvöldið 13. febrúar og hefst kl. 19.00.
Á Vestfjörðum er hefð fyrir því að baka pönnukökur þegar sólin fer aftur að skína niður í byggð eftir skammdegið. Og í kvöld er vitaskuld haldið í þá hefð; á boðstólum verða sólarpönnukökur með sykri, rjómapönnukökur, vestfirskar hveitikökur, kaffi og heitt súkkulaði.
„Farið verður yfir frægðarsögur, bæði sannar og missannar,“ segir í tilkynningunni, og að fleiri skemmtiatriði séu á dagskránni. „Þórarinn Hannesson og Sturlaugur Kristjánsson munu halda uppi stemmingunni fram til miðnættis.“
Viðburðurinn er auglýstur á Facebook undir heitinu Sólarkaffi Vestfirðinga á Norðurlandi. – sjá hér. Einnig er hægt að hafa samband við Þórhildi Þórhallsdóttur.
- Miðar seldir við innganginn til kl 20.00 en tekið fram að posi verður ekkiá staðnum.
